Halcyon 1 siglir í kvöldsólinni á Tagusánni

Halcyon 1 á siglingu á Tagusánni. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Lissabon, höfuðborg Portúgals, liggur á bökkum Tagusárinnar sem  er lengsta  á Íberíuskagans og Halycon 1, sem sést á þessari mynd, er ein af þeim fleytum sem sigla um ána með ferðamenn. Kristsstyttan sem sést í baksýn er samskonar og í Río de Janeiro í Brasilíu og … Halda áfram að lesa Halcyon 1 siglir í kvöldsólinni á Tagusánni

Drangey SK 2 á stími

2893. Drangey SK 2. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Það var dandalablíða á miðunum fyrir vestan land í síðustu viku þegar Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir af Drangey SK 2 frá Sauðárkróki. 2893. Drangey SK 2. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking … Halda áfram að lesa Drangey SK 2 á stími

Særún EA 251

1527. Særún EA 251 ex Gullfaxi SH 125. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Særún EA 251 frá Árskógssandi er hér að draga netin, að ég held á Breiðafirði, á vetrarvertíð snemma á níunda áratug síðustu aldar. Særún hét upphaflega Gullfaxi SH 125 frá Grundarfirði. Í 3. tbl. Ægis 1979 segir svo frá: 8. febrúar s.l. afhenti Skipasmíðastöðin Skipavík h.f. … Halda áfram að lesa Særún EA 251

Þórir SF 77 kom til Njarðvíkur í gærkveldi

2731. Þórir SF 77. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Þórir SF 77 kom til Njarðvíkur í gærkveldi þeirra erinda að taka veiðarfæri og ís áður en haldið yrði í fyrstu veiðiferð eftir breytingar. Þórir SF 77 hefur verið í Hafnarfirði frá því hann kom til landsins frá Póllandi eftir lengingu ofl. breytingar. Í Hafnarfirði var m.a. … Halda áfram að lesa Þórir SF 77 kom til Njarðvíkur í gærkveldi

Lokys KL 926, nýr togari Reyktal

Lokys K 926 ex Qaqqatsiaq GR-6-403. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Útgerðarfyrirtækið Reyktal keypti nýlega grænlenska frystitogarann Qaqqatsiaq GR-6-403 af Royal Greenland og verður hann gerður út til rækjuveiða. Togarinn, sem hefur fengið nafnið Lokys KL 926, liggur nú í Hafnarfjarðarhöfn þar sem er verið að gera ýmsar endurbætur á honum. Meðal annars verður sett í … Halda áfram að lesa Lokys KL 926, nýr togari Reyktal

Ný Cleopatra 32 til neta og makrílveiða til Hjaltlandseyja

Endeavour LK 11. Ljósmynd Trefjar 2019. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi núna á dögunum nýjan Cleopatra bát til Whalsay á Hjaltlandseyjum. Að útgerðinni stendur Jimmy Hutchinson útgerðarmaður og synir hans tveir. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Endeavour.  Báturinn er 9.6 brúttótonn.  Endeavour er af gerðinni Cleopatra 32 og er fyrsti báturinn sem Trefjar afgreiða af … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 32 til neta og makrílveiða til Hjaltlandseyja

Nýi Sisimiut kom til Hafnarfjarðar í morgun

Sisimiut GR 6-18. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Í morgun kom grænlenski frystitogarinn Sisimiut GR 6-18 til Hafnarfjarðar og Jón Steinar var þar mættur til að fanga hann á kortið. Sisimiut er annar tveggja frystitogara sem Royal Greenland fær afhenta á þessu ári frá skipasmíðastöðinni í Astilleros de Murueta í Bilbao á Spáni.  Sismiut kom til … Halda áfram að lesa Nýi Sisimiut kom til Hafnarfjarðar í morgun

Engey RE 1 seld til Murmansk

2889. Engey RE 91,síðar RE 1. Ljósmynd Óskar Franz 2017. HB Grandi hefur selt Engey RE 1 til Murmansk Trawl Fleet í Rússlandi og verður hún afhent nýjum eigendum fyrri hluta júní mánaðar. Í fréttatilkynningu segir að í tengslum við þessa sölu verði ísfisktogarinn Helga María AK 16, tekin aftur í rekstur, en henni var … Halda áfram að lesa Engey RE 1 seld til Murmansk

Fljótaskipið Douro Serenity

Douro Serenity. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Fljótaskipið Douro Serenity siglir hér á Douroánni í Portúgal en myndina tók ég af svölum íbúðarinnar í Porto þar sem dvalið er þessa dagana. Skipið er 80 metra langt og 11 metra breitt, þriggja þilfara skip. Smíðað árið 2017 í West Sea shipyard í Viana do Castelo í Portúgal. … Halda áfram að lesa Fljótaskipið Douro Serenity