1750. Vinur ÞH 73 ex Matthildur EA 222. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Þær myndir sem nú birtast voru teknar þann 3. september árið 2008 og sýna Vin ÞH 73 koma að landi á Húsavík og löndun úr honum. Þann dag skrifað ég eftirfarandi á gömlu síðuna: Þessar myndir tók ég í dag þegar netabáturinn Vinur … Halda áfram að lesa Kallarnir á Vininum
Month: febrúar 2019
Hreifi í skveringu sumarið 2008
5466. Hreifi ÞH 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Hreifi ÞH 77 frá Húsavík er á þessum myndum í skveringu sumarið 2008. Þarna er eigandi hans Héðinn Helgason eitthvað að bardúsa áður en borinn var botnfarvi á bátinn. Hreifi var smíðaður fyrir Héðinn Maríusson, afa Héðins, árið 1973. 5466. Hreifi ÞH 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. … Halda áfram að lesa Hreifi í skveringu sumarið 2008
Sóley Sigurjóns GK 200
2262. Sóley Sigurjóns GK 22 ex Sólbakur RE 207. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019 Á þessari mynd Hólmgeirs Austfjörð frá því í gær má sjá togarann Sóley Sigurjóns GK 200 að veiðum fyrir vestan land. Nesfiskur hf. í Garði gerir togarann út en hann hét áður Sólbakur RE 207. Upphaflega hét togarinn Quaasiut en fékk nafnið … Halda áfram að lesa Sóley Sigurjóns GK 200
Sigurborg SH 12
1019. Sigurborg SH 12 ex Sigurborg HU 100. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir í gærmorgun af Sigurborgu SH 12 þar sem hún var að veiðum suðvestur úr Bjargtöngum. 1019. Sigurborg SH 12 ex Sigurborg HU 100. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Sigurborg SH 12 er í eigu Soffaníasar Cecilssonar ehf. í Grundarfirði … Halda áfram að lesa Sigurborg SH 12
Eldur í báti á Skjálfanda 2008
1475. Sæborg ÞH 55 með 1262. Sigurpál ÞH 130 í togi. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Að morgni 2. septembers árið 2008 kom upp eldur í vélarrúmi Sigurpáls ÞH 130 á Skjálfanda. Báturinn var um 1,5 sjm. frá Húsavík og því var stutt fyrir björgunaraðila að sigla að bátnum. Guðbergur Rafn Ægisson formaður Björgunarsveitarinnar hafði þetta … Halda áfram að lesa Eldur í báti á Skjálfanda 2008
Fjóla SH 7
2070. Fjóla SH 7 ex Kópur Gk 175. Ljósmynd Alfons Finnsson. Fjóla SH 7 kemur hér að landi í Ólafsvík eftir makrílveiðiferð. Fjóla SH 7 sem er í eigu Þórishólma ehf. í Stykkishólmi var smíðuð í Stálsmiðjunni árið 1990 fyrir Garðar Garðarsson útgerðarmann í Keflavík. Báturinn fékk nafnið Jón Garðar KE 1. Hann var 9,7 … Halda áfram að lesa Fjóla SH 7
Farsæll SH 30 að veiðum
1629. Farsæll SH 30 ex Klængur ÁR 2. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Farsæll SH 30 er hér að veiðum suðvestur af Bjargtöngum í gærmorgun. Farsæll er 177 rúmlesta/237 BT togbátur í eigu FISK-Seafood ehf. á Sauðárkróki. Farsæll SH 30 hét upphaflega Eyvindur Vopni NS 70 og var smíðaður 1983 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar h/f fyrir Kolbeinstanga … Halda áfram að lesa Farsæll SH 30 að veiðum
Breki VE 61
2861. Breki VE 61. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Maggi Jóns tók þessar myndir af skuttogaranum Breka VE 61 í Reykjavík. Á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar segir að Breki VE var tekinn upp í slipp í Reykjavík í vikunni í tengslum við skoðun á skipinu í tilefni af því að ársábyrgð kínversku skipasmíðastöðvarinnar rennur brátt út. Skipið var … Halda áfram að lesa Breki VE 61
BBC Portugal í höfn á Húsavík 2008
BBC Portugal ex Mareike B. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Flutningaskipip BBC Portugal kom til Húsavíkur með áburðarfarm í marsmánuði 2008. BBC Portugal hét áður Mareike B og var smíðað árið 2001. Það er 2.545 GT að stærð. Lengdin er 86 metrar og breidd þess er 12 metrar. Skipið hét Mareike B þegar til 2002 þegar … Halda áfram að lesa BBC Portugal í höfn á Húsavík 2008
Reynir GK 355
733. Reynir GK 355 ex Siggi Magg GK 355. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Reynir GK 355 kemur hér til hafnar í Grindavík á vetrarvertíðinni 2008. Báturinn hét upphaflega Reynir VE 15, smíðaður í Danmörku árið 1958. Hann var 71 brl. að stærð. Síðar hét hann Reynir ÁR 18, Reynir GK 47, Siggi Magg GK 355 … Halda áfram að lesa Reynir GK 355









