1029. Svanur RE 45 ex Esjar RE 400. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Svanur RE 45 er hér á siglingu á einhverjum firðinum fyrir austan en myndina tók Hreiðar Olgeirsson á síldarvertíð 1982 eða 3. Svanur RE 45 hét upphaflega Brettingur NS 50 og var smíðaður árið 1967 fyrir Tanga h/f á Vopnafirði í Flekkufirði í Noregi. … Halda áfram að lesa Svanur RE 45
Kalli í Höfða ÞH 234
2434. Kalli í Höfða ÞH 234. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Kalli í Höfða ÞH 234 var smíðaður hjá Trefjum árið 2000 fyrir Aðalstein Pétur Karlsson á Húsavík. Báturinn kom í fyrsta skipti til heimahafnar um miðjan septembermánuð það ár og hóf fljótlega róðra. Ef síðuhöfundur man rétt er hann að koma þarna úr fyrsta róðri … Halda áfram að lesa Kalli í Höfða ÞH 234
Akranes kom til Grindavíkur í gær
2777. Akranes ex Víkingur. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Farþegabáturinn Akranes kom til Grindavíkur í gær og tók Jón Steinar þessar myndir af honum. Akranes var smíðað 1971 og var fyrst notað sem slökkvibátur fyrir sænska herinn. Akranes hét upphaflega Ísafold á íslenskri skipaskrá en það nafn fékk hann árið 2008. Sumarið 2013 var báturinn seldur … Halda áfram að lesa Akranes kom til Grindavíkur í gær
Leifur Jóns SH 290
6347. Leifur Jóns SH 290 ex Fagranes ÍS 8. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Leifur Jóns SH 290 var gerður út til strandveiða í sumar og voru þessar myndir teknar þegar hann kom að landi á Patreksfirði í byrjun júlímánaðar. Það er Sveinbjarnargerði ehf. sem á og gerir bátinn út en hann er með heimahöfn í … Halda áfram að lesa Leifur Jóns SH 290
Geiri Péturs ÞH 344
2285. Geiri Péturs ÞH 344 ex Sverri Olason TG 730. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1997. Geiri Péturs ÞH 344, sá fjórði í röðinni, var keyptur frá Færeyjum í desember árið 1996 en kom til heimahafnar á Húsavík í janúar 1997. Þessar myndir sem hér birtast voru teknar vorið 1997 eftir að togarinn hafði verið um tíma … Halda áfram að lesa Geiri Péturs ÞH 344
Guðrún Þorkelsdóttir SU 211
2944. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 ex Qavak GR 2 1. Ljósmynd Þór Jónsson 2020. Þór Jónsson á Djúpavogi, skipverji á Ljósafelli SU 70, tók þessa mynd af Guðrúnu Þorkelsdóttur SU 211 á miðunum seint í ágústmánuði. Eskja hf. keypti skipið haustið 2017 en það hét áður Qavak GR 2 1 og var í eigu dótturfélags … Halda áfram að lesa Guðrún Þorkelsdóttir SU 211
Bervík SH 343
936. Bervík SH 343 ex Friðrik Bergmann SH 240. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Bervík SH 343, sem sést hér á mynd Tryggva Sigurðssonar, hét upphaflega Æskan SI 140 og var smíðuð 1963 hjá Raun Bybergs Skibsbyggeri as. í Odense í Danmörku fyrir Æskuna hf. á Siglufirði. Hún mældist í upphafi 82 brl. að stærð en var síðan … Halda áfram að lesa Bervík SH 343
Tveir nýir Cleopatra 31 til Noregs
Ea N-10-SO. Ljósmynd Trefjar 2020. Nú nýverið afgreiddi bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði tvo nýja Cleopatra báta til Nordlandsfylkis í Norður Noregi. Bátarnir, sem komnir eru til Noregs og heita Emmy og Ea, eru báðir af gerðinnni Cleopatra 31 en þeir eru 9.6 metrar að lengd og mælast 9 brúttótonn að stærð. Útgerðarmennirnir eru Trygve Magnus … Halda áfram að lesa Tveir nýir Cleopatra 31 til Noregs
Haförn kemur að landi eftir dragnótaróður
1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Haförn ÞH 26 kom að landi á Húsavík síðdegis í dag en báturinn er gerður út af Ugga fiskverkun ehf. til dragnótaveiða Uggi fiskverkun ehf. keypti bátinn til Húsavíkur haustið 2010 en hann hét áður Þorsteinn BA 1 frá Patreksfirði. Haförn ÞH 26 hét upphaflega … Halda áfram að lesa Haförn kemur að landi eftir dragnótaróður
Kvika GK 517
6991. Kvika GK 517 ex Mundi ÍS 97. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Handfærabáturinn Kvika GK 517 kom til hafnar á Húsavík síðdegis í dag og þá voru meðfylgjandi myndir teknar. Báturinn, sem Útgerðarfélagið Atla ehf. gerir út og er með heimahöfn í Sandgerði, er ekki með öllu ókunnur á Húsavík. Báturinn hét upphaflega Kvika ÞH … Halda áfram að lesa Kvika GK 517









