173. Sigurður Ólafsson SF 44 ex Sigurður Sveinsson SH 36. Ljósmynd Sverrir Aðalsteinsson. Hann ber aldurinn vel hann Sigurður Ólafsson SF 44 sem hér liggur í blankalogni við bryggju á Höfn. Báturinn var smíðaður í Risör í Noregi árið 1960 fyrir Guðmund Runólfsson Grafarnesi, Guðmund Kristjánsson og Jón Kristjánsson í Eyrarsveit Snæfellssýslu og hét Runólfur SH 135. … Halda áfram að lesa Sigurður Ólafsson við bryggju á Höfn
Bárður SH 81 kom til Dalvíkur
2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2020. Bárður SH 81 kom til Dalvíkur nú í kvöld og tók Haukur Sigtryggur þessar myndir við það tækifæri. Bárður er á dragnót en eins og menn muna þá er hann stærsti trefjaplastbátur sem smíðaður hefur verið fyrir íslenska útgerð. Bárður SH 81 er 26,93 metra langur, breidd … Halda áfram að lesa Bárður SH 81 kom til Dalvíkur
Anna EA 83
6754. Anna EA 83 ex Anna ÓF 83. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Anna EA 83 var á strandveiðum í sumar og voru þessar myndir teknar á Siglufirði um miðjan ágúst. Anna er í eigu Lúðvíks Trausta Gunnlaugssonar á Akureyri en hann gerði áður út Trausta EA 98 til strandveiða. Anna hét upphaflega Látravík RE 154 … Halda áfram að lesa Anna EA 83
Gulltoppur II EA 229
7159. Gulltoppur II EA 229 ex Guðrún Helga EA 85. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Gulltoppur II EA 229 var smíðaður í Trefjum ehf. í Hafnarfirði árið 1989 og er af gerðinni Skel 80. Báturinn, sem áður hét Guðrún Helga EA 85, er gerður út af Gullfesti ehf. á Akureyri. 7159. Gulltoppur II EA 229 ex … Halda áfram að lesa Gulltoppur II EA 229
Jóna Eðvalds
2618. Jóna Eðvalds SF 200 ex Krossey SF 20. Ljósmynd Sverrir Aðalsteinsson 2020. Uppsjávarveiðiskipið Jóna Eðvalds SF 200 kom til Hafnar í Hornafirði í dag og tók Sverrir Aðalsteinsson þessa mynd eftir að hún lagðist að bryggju. Á heimasíðu Skinneyjar-Þinganess segir: Jóna Eðvalds var smíðuð hjá Flekkefjord skipasmíðastöðinni í Noregi árið 1975. Skipið hét áður … Halda áfram að lesa Jóna Eðvalds
Nýr Börkur sjósettur í Póllandi
Börkur NK 122. Ljósmynd svn.is 2020. Í gær hófst vinna við að sjósetja nýjan Börk en hann er í smíðum hjá danska fyrirtækinu Karstensens Skibsværft AS. Skrokkur skipsins er smíðaður í skipasmíðastöð Karstensens í Gdynia í Póllandi og þar fer sjósetningin fram. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að skrokkurinn verði dreginn í nóvember nk. til Skagen … Halda áfram að lesa Nýr Börkur sjósettur í Póllandi
Ísey EA 40 kom að landi á Húsavík í gær
1458. Ísey EA 40 ex Ísey ÁR 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Það er kannski komið nóg í bili af Ísey EA 40 hér á síðunni en læt þó þessar vaða en þarna var ég að mynda stjórnborðssíðuna. Báturinn hét eins og áður hefur komið hér fram upphaflega Langanes ÞH 321 frá Þórshöfn. Hannvar smíðaður … Halda áfram að lesa Ísey EA 40 kom að landi á Húsavík í gær
Geir ÞH 150 kemur til Húsavíkur
2408. Geir ÞH 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Jæja þá er það Geir ÞH 150 aftur en nú er það stjórnborðssíðan á þessu aflaskipi sem fær að njóta sín. Myndirnar voru teknar þegar báturinn kom að landi á Húsavík fyrir stundu en hann var við dragnótaveiðar á Skjálfanda. Eins og áður hefur komið fram var … Halda áfram að lesa Geir ÞH 150 kemur til Húsavíkur
Karólína á leið í róður
2760. Karólína ÞH 100 á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Línubáturinn Karólína ÞH 100 fór í róður frá Húsavík í gærkveldi og voru þessar myndir teknar þá. Karólína ÞH 100 er í eigu Doddu ehf. á Húsavík og var smíðuð hjá Samtak í Hafnarfirði árið 2007. Báturinn er 11,94 metrar að lengd, 4,18 metrar á … Halda áfram að lesa Karólína á leið í róður
Gnúpi lagt
1579. Gnúpur GK 11 ex Guðbjörg ÍS 460. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Gnúpur GK 11 kom í land síðastliðin mánudag úr sinni síðustu veiðiferð undir merkjum Þorbjarnar hf í Grindavík en honum hefur nú verið lagt. Jón Steinar tók þessa mynd af togaranum við bryggju í logni gærdagsins en hann skrifaði eftirfarandi á síðu sína … Halda áfram að lesa Gnúpi lagt









