Húsavíkurhöfn í haustblíðu dagsins

Húsavík 10 október 2020. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það var fallegt haustveður á Húsavík í dag en lítið um að vera við höfnina þegar þessar myndir voru teknar um miðjan daginn. En njótum þeirra. Húsavíkurhöfn 10. október 2020. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn í haustblíðu dagsins →

Emma VE 219

1664. Emma VE 219. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Emma VE 219, smíðuð í Póllandi fyrir samnefnt fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Nánar tiltekið hjá Tczew Yard í Tczew í Póllandi árið 1988. Emma var 82 brl. að stærð búin 715 hestafla Caterpillar aðalvél. Í 7. tbl. Ægis 1988 sagði m.a um Emmu: Nýtt tveggja þilfara fiskiskip bættist við fiskiskipaflotann 10. maí … Halda áfram að lesa Emma VE 219 →

Einn rauður og þrír bláir

1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Í dag komu til löndunar á Húsavík fjórir dragnótabátar sem voru að veiðum á Skjálfanda og þar af var einn rauður að lit. Heimabáturinn Haförn ÞH 26. Hinir þrír eru bláir að lit en enginn þó alveg í sama lit. Þetta voru Bárður … Halda áfram að lesa Einn rauður og þrír bláir →

Bárður SH 81

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Bárður SH 81 frá Ólafsvík kom til löndunar á Húsavík um miðjan daginn en báturinn var að dragnótaveiðum á Skjálfandaflóa. Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. en að því fyrirtæki stendur Pétur Pétursson skipstjóri og útgerðarmaður á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Smíði bátsins fór … Halda áfram að lesa Bárður SH 81 →

Það rigndi hressilega þegar Bárður kom

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Það var farið að skyggja og rigndi hressilega þegar dragnótabáturinn Bárður SH 81 frá Ólafsvík kom að landi á Húsavík í dag. Bárður SH 81 hefur verið við dragnótaveiðar á Eyjafirði að undanförnu en færði sig yfir í Skjálfandaflóa í dag. 2965. Bárður SH 81. Ljósmyndir Hafþór … Halda áfram að lesa Það rigndi hressilega þegar Bárður kom →

Landað úr Hafborginni

2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hafborg EA 152 kom til löndunar á Húsavík síðdegis í dag eftir að hafa verið að dragnótaveiðum á Skjálfanda. Hafborg EA 152 er 284 brútt­ót­onn að stærð, lengd hennar er 26 metr­ar og hún er átta metra breið. Hafborg er gerð út af samnefndu fyrirtæki og heimahöfnin … Halda áfram að lesa Landað úr Hafborginni →

Geir ÞH 150 frá Þórshöfn

2408. Geir ÞH 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Geir ÞH 150 var smíðaður fyrir Geir ehf. á Þórshöfn í Ósey í Hafnarfirði árið 2000 og kom fyrsta skipti til heimahafnar í septembermánuði þar ár. Í Morgunblaðinu þann 21. september árið 2000 mátti lesa eftirfarandi frétt frá fréttaritara blaðsins á Þórshöfn: Nýr bátur bættist í flotann … Halda áfram að lesa Geir ÞH 150 frá Þórshöfn →

Sandafell HF 82

1812. Sandafell HF 82. Ljósmynd Hörður Harðarson. Sandafell HF 82 var smíðað í Póllandi fyrir Hvamsfell hf. í Hafnarfirði og kom til landsins sumarið 1988. Svo segir frá í 9. tbl. Ægis það ár: 20. júlí sl. kom nýtt stálfiskiskip til Hafnarfjarðar, m/s Sandafell HF 82. Skip þetta er smíðað hjá skipa smíðastöðinni Stocznia Wisla … Halda áfram að lesa Sandafell HF 82 →