
Á þessari mynd sem tekin var fyrir tuttugu og þrem árum upp á dag má sjá Kalla í Höfða ÞH 234 við bryggju á Húsavík.
Kalli í Höfða ÞH 234 var smíðaður hjá Trefjum árið 2000 fyrir Aðalstein Pétur Karlsson á Húsavík en árið 2009 fékk báturinn nafnið Steini í Höfða EA 37 með heimahöfn í Grímsey.
Báturinn bar nafnið Arnþór EA 37 frá árinu 2015 og þar til vorið 2025 að hann fékk nafnið Blíða VE 263.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution