Haförn að veiðum á Skjálfanda

1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Haförn ÞH 26 frá Húsavík er hér að dragnótaveiðum á Skjálfandaflóa í dag. Uggi fiskverkun ehf. keypti bátinn til Húsavíkur haustið 2010 en hann hét áður Þorsteinn BA 1 frá Patreksfirði. Haförn ÞH 26 hét upphaflega Faxafell GK 110, því næst Blíðfari GK 275, Mundi SF … Halda áfram að lesa Haförn að veiðum á Skjálfanda →

Feðgarnir á Bárði

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Þá er Bárður SH 81 farinn úr Skjálfandanum að sinni amk., en ég tók þessar myndir þegar hann kom til löndunar á Húsavík í gær. Ég hef legið fyrir honum og myndað eins og lesendur síðunnar hafa eflaust tekið eftir og er ég nokkuð sáttur með afraksturinn. … Halda áfram að lesa Feðgarnir á Bárði →

Landað í kvöldblíðunni

2965. Bárður SH 81 í Húsavíkurhöfn í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það var logn og blíða á Húsavík í dag og það sama var upp á teningnum í kvöld þegar Bárður SH 81 var að landa afla sínum. Aftan við Bárð lá Hafborgin sem landaði síðdegis og ef minni mitt svíkur ekki eru þetta tveir … Halda áfram að lesa Landað í kvöldblíðunni →

Blængur á Skjálfanda

1345. Blængur NK 125 ex Freri RE 73. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Frystitogarinn Blængur NK 125 frá Neskaupstað kom inn Skjálfandann síðdegis í dag og stoppaði um stund framan við höfnina á Húsavík hvar léttabátur fór að bryggju. Heppnin var með mér er ég sá til skólabróðurs sem var að koma að landi eftir að … Halda áfram að lesa Blængur á Skjálfanda →

Bárður við bryggju á Húsavík

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Enn og aftur er það Bárður SH 81 sem kemur fyrir augu þeirra er sækja síðuna heim en hér liggur hann við bryggju á Húsavík í gær. Það er ekkert að því að birta myndir af Bárði enda virkilega fallegur bátur sem smíðaður var í Danmörku og … Halda áfram að lesa Bárður við bryggju á Húsavík →

Arnar ÁR 55

1056. Arnar ÁR 55 ex Skálafell ÁR 155. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Arnar ÁR 55 frá Þorlákshöfn kom nokkrum sinnum til hafnar á Húsavík þegar hann stundaði rækjuveiðar árið 2012. Þessar myndir sem nú birtast voru teknar í septembermánuði það ár, nánar tiltekið þann 14. september. Arnar hét upphaflega Ísleifur VE 63 og var smíðaður … Halda áfram að lesa Arnar ÁR 55 →

Sigurvon RE 11

2161. Sigurvon RE 11 ex Sigurvon ÍS 260. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Jón Steinar tók þessar myndir af handfærabátnum Sigurvon RE 11 koma til hafnar í Grindavík í gær. Báturinn hét upphaflega Hallvarður á Horni GK 111 og var smíðaður 1992 hjá Mótun í Hafnarfirði fyrir Hafstein Sæmundsson útgerðarmann í Grindavík. Hefur í gegnum … Halda áfram að lesa Sigurvon RE 11 →