1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessi mynd var tekin á Húsavík um kaffileytið í dag þegar hvalaskoðunarbáturinn Sylvía kom að landi. Sylvía, sem er í eigu Gentle Giants, var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1976 fyrir Grenvíkinga og hét upphaflega Sigrún ÞH 169. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Sylvía
Bjargey ÞH 278
2786. Bjargey ÞH 278 ex Tumi EA 84. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014. Bjargey ÞH 278 hét upphaflega Mars EA 542 og síðar Tumi EA 84. Báturinn var smíðaður hjá Seiglu árið 2010 og var með heimahöfn á Hjalteyri fyrstu tvö árin. Árið 2012 er hann seldur á Árskógssand þar sem bátruinn fékk nafnið Tumi EA … Halda áfram að lesa Bjargey ÞH 278
Wilson Saga kom til Húsavíkur í morgun
IMO 8918461. Wilson Saga ex Borealnes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Saga kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum þar sen nú er verið að skipa upp hráefnisfarmi fyrir kísliver PCC á Bakka. Wilson Saga var smíðað árið 1998 og siglir undir fána Kýpur með heimahöfn í Limasol. Skipið er 113 metra … Halda áfram að lesa Wilson Saga kom til Húsavíkur í morgun
Haddi Möggu BA 153
6337. Haddi Möggu BA 153 ex Geiri ÓF 51. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Haddi Möggu BA 153 hét upphaflega Vigdís RE 149 og var smíðaður 1978 hjá Flugfiski hf. í Vogum á Vatnsleysuströnd. Síðar bar hann nöfnin Steinunn EA 155, og Kári EA 63 heimahöfn Hrísey. Því næst Geiri ÓF 51 með heimahöfn á Ólafsfirði. … Halda áfram að lesa Haddi Möggu BA 153
Guðmundur í Nesi RE 13
2626. Guðmundur í Nesi RE 13. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Guðmundur í Nesi RE 13 kom til hafnar í Reykjavík í gær og signalinn kominn upp í tilefni Sjómannadagsins. Guðmundur í Nesi var smíðaður í Noregi árið 2000, en Útgerðarfélag Reykjavíkur keypti skipið 2004 og gerði út til loka árs 2018. Þá var skipið var selt … Halda áfram að lesa Guðmundur í Nesi RE 13
Sjómannadagskveðja
2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Það hefur tíðkast hjá mér hingað til að óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með Sjómannadaginn á Sjómannadaginn sjálfan en það er best að henda kveðjunni bara inn núna í upphafi Sjómannadagshelgarinnar. Sem sagt til hamingju með Sjómannadaginn og kveðjunni fylgir mynd sem ég … Halda áfram að lesa Sjómannadagskveðja
Börkur NK 122
2983. Börkur NK 122. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2021. Börkur NK 122 kom til heimahafnar á Neskaupstað í gær og tók Guðmundur St. Valdimarsson þessa mynd þá. Á vef Fiskifrétta segir m.a Skipið er smíðað hjá skipasmíðastöðinni Karstensens Skibsværft AS þar í landi. Börkur er systurskip Vilhelms Þorsteinssonar EA sem kom til landsins í aprílbyrjun. … Halda áfram að lesa Börkur NK 122
Særós KE 207
1152. Særós KE 207 ex Þórunn Gunnarsdóttir KE 207. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Særós KE 207 hét upphaflega Hrönn KE 48 og var smíðuð í Bátalóni árið 1971, 11 brl. að stærð. Árið 1973 fékk báturinn nafnið Magnús Jónsson BA 30 frá Patreksfirði. Til ársins 1987 var hann gerður út undir nöfnunum Þórunn Jónsdóttir RE 101 … Halda áfram að lesa Særós KE 207
Kleifabergið verður fljótandi hótel
1360. Kleifaberg RE 70 ex Kleifaberg ÓF 2. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Kleifabergið verður innan tíðar fljótandi hótel við norðausturströnd Grænlands fyrir hóp á vegum ástralsks námuvinnslufyrirtækis sem vinnur að rannsóknum þar í landi. Frá þessu segir í Fiskifréttum en þar kemur m.a fram: Kleifabergið, sem var smíðað í Póllandi 1974, hét áður Engey RE … Halda áfram að lesa Kleifabergið verður fljótandi hótel
Við bryggju á Húsavík
Við bryggju á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bryggjumynd frá því um miðjan níunda áratug síðustu aldar tekin á Húsavík. Sæborg ÞH 55 í forgrunni og Skálaberg ÞH 244 utan á henni. Júlíus Havsteen ÞH 1 fyrir aftan bátana og í bakgrunni Kolbeinsey ÞH 10. Það sést í skutinn á æljóni EA 55 sem var í … Halda áfram að lesa Við bryggju á Húsavík









