5920. Laxinn ÞH 177 ex Laxinn GK 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Laxinn ÞH 177 fór í smá prufusiglingu í dag og var þessi mynd tekin þá. Eins og áður hefur komið fram var Laxinn keyptur til Húsavíkur í vor. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By … Halda áfram að lesa Laxinn ÞH 177
Jökull og A
IMO 1012141. A - 2991. Jökull ÞH 299 ex Naneq. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér siglir Jökull ÞH 299 meðfram snekkjunni A í gærkveldi en hún liggur á Skjálfandaflóa, rétt utan hafnarinnar á Húsavík. A er tæpir 143 metrar að lengd og 25 metra breið og ná möstur hennar þrjú hátt í 100 metra hæð. … Halda áfram að lesa Jökull og A
A á Skjálfanda
IMO 1012141. A. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þar kom að því, A er komin. Hún hefur legið á Skjálfanda í dag rétt utan hafnarinnar á Húsavík. Hvað hún stoppar lengi veit ég ekki en maður er búinn að taka nokkrar myndirnar og á eflaust eftir að taka fleiri. Snekkjan er tæpir 143 metrar að lengd … Halda áfram að lesa A á Skjálfanda
Hafborgin
2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hafborgin siglir hér til hafnar á Húsavík í gær en sólarlagið á Skjálfanda var ægifagurt. Ekkert meira um þessa mynd að segja. Nema þá helst að Skjálfandi skartar einnig sínu fegursta í kvöld. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. … Halda áfram að lesa Hafborgin
Glófaxi VE 300
968. Glófaxi VE 300 ex Arnþór EA 16. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Flott þessi mynd Tryggva Sigurðssonar af Glófaxa VE 300 koma drekkhlaðinn til hafnar í Vestmannaeyjum. Upphaflega Krossanes SU 320 og var einn 18 báta sem smíðaðir voru í Boizenburg fyrir Íslendinga á árunum 1964-1968. Nöfnin sem báturinn bar á ferli sínum eru: Krossanes SU … Halda áfram að lesa Glófaxi VE 300
Fossá ÞH 362
2404. Fossá ÞH 362. Ljósmynd Börkur Kjartansson. Á þessum myndum Barkar Kjartanssonar má sjá kúfiskveiðiskipið Fossá ÞH 362 frá Þórshöfn við veiðar á Skjálfanda. Fossá ÞH 362 var smíðuð í fyrir Hraðfrystistöðvar Þórshafnar og kom hún til heimahafnar á Þórshöfn í febrúarmánuði árið 2001. Skipið var smíðað í Huangpu-skipasmíðastöðinni í Gung Zhou í Kína. Í … Halda áfram að lesa Fossá ÞH 362
Björgvin SH 500
7690. Björgvin SH 500 ex Silla BA 67. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Björgvin SH 500 var í höfn á Húsavík í dag en hann kom landleiðina í gær og var sjósettur við Norðurgarðinn. Veit svo sem ekkert enn á hvaða ferðalagi hann er en það kemur í ljós á næstunni. Báturinn hét upphaflega Silla BA … Halda áfram að lesa Björgvin SH 500
Herborg HF 67
6429. Herborg HF 67 ex Eva HF 67. Ljósmynd Kristvin Már Þórsson 2021. Kristvin Már Þórsson tók þessa mynd af strandveiðibátnum Herborgu HF 67 á dögunum en skipstjórinn þar um borð er Húsvíkingurinn Hermundur Svansson. Nú búsettur í Hafnarfirði. Herborg hét upphaflega Árni Gunnlaugsson ÓF 15 og var smíðaður árið 1982 og hafði smíðanúmer 69 … Halda áfram að lesa Herborg HF 67
Hafrafell farið austur
2912. Hafrafell SU 65 ex Hulda GK 17. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Þeim fækkar aðkomubátunum sem róið hafa frá suðvesturhorninu að undanförnu og mokfiskað. Hrygningarfiskurinn er nú genginn af slóðinni og fiskiríið dottið niður enda ekki að ástæðulausu að lokadagur vetrarvertíðar var hér áður fyrr 11. maí. Hafrafell SU 65 lét úr höfn í Grindavík í … Halda áfram að lesa Hafrafell farið austur
Sighvatur hélt til veiða í kvöld
1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Línuskipið Sighvatur GK 57 til veiða frá Grindavík í sólinni fyrr í kvöld. Hann kom inn til löndunar í morgun og landaði rétt rúmum 200 körum, það gerir um 65 tonn. Uppistaða aflans var langa. 1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmyndir … Halda áfram að lesa Sighvatur hélt til veiða í kvöld









