7311. Njörður ÞH 444 ex Hanna Ellerts SH 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Þessar myndir voru teknar á Húsavík í dag þegar Njörður ÞH 444 kom til hafnar. Sigurgeir Pétursson, sem jafnan stýrir mun stærra fleyi hinum megin á hnettinum, var að koma úr strandveiðiróðri og Pétur faðir hans Olgeirsson kom til aðstoðar við löndun. … Halda áfram að lesa Feðgar landa úr Nirði ÞH 444
Author: Hafþór Hreiðarsson
Ronja Fjord kom til Húsavíkur í morgun
IMO 9646405. Ronja Fjord ex Oyfjord. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Ronja Fjord kom til Húsavíkur í morgun og er það í annað skipti á nokkrum dögum. Skipið flytur seiði frá Kópaskeri austur á firði. Ronja Fjord var smíðuð í Aas-skipasmíðastöðinni í Vestnes, Noregi árið 2014 og hét upphaflega Oyfjord. Skipið er 69 metra langt og … Halda áfram að lesa Ronja Fjord kom til Húsavíkur í morgun
Blíðfari ÓF 70
2069. Blíðfari ÓF 70 ex Sæborg SU 400. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Blíðfari ÓF 70 kemur hér að landi á Siglufirði í gær en báturinn stundar alla jafna róðra þaðan. Blíðfari hét upphaflega Ólafur HF 251 og var smíðaður árið 1990 hjá Mótun í Hafnarfirði. Ólafur HF 251 var seldur til Siglufjarðar árið 2005 … Halda áfram að lesa Blíðfari ÓF 70
Vestri á útleið frá Siglufirði
3030. Vestri BA 63 ex Tobis. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Rækjutogarinn Vestri BA 63 stundar veiðar úti fyrir Norðurlandi og landar á Siglufirði. Hann er þar yfirleitt á þriðjudögum og því var brunað á Tröllaskagann í morgun. Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf. á Patreksfirði keypti skipið frá Noregi í vetur. Í Noregi hét það Tobis en fékk … Halda áfram að lesa Vestri á útleið frá Siglufirði
NG Explorer kom til Húsavíkur í dag
IMO 8019356. National Geographic Explorer siglir inn Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Farþegaskipið National Geographic Explorer kom til Húsavíkur um miðjan dag í dag og það ekki í fyrsta skipti. Skipið lagðist að Þvergarðinum en Silver Whisper var við Bökugarðinn. Skipið var smíðað árið 1982 í Ulstein Verft AS í Noregi og er í … Halda áfram að lesa NG Explorer kom til Húsavíkur í dag
Hvalur 9 RE 399
997. Hvalur 9 RE 399. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Jón Steinar tók þessar flottu myndir af Hval 9 RE 399 í gær en þá kom hann með tvær langreyðar til Hvalstöðvarinnar við Miðsand í Hvalfirði. Hvalur 9 var smíðaður árið 1952 í Langesund í Noregi en Hvalur hf. keypti hann hingað til lands árið … Halda áfram að lesa Hvalur 9 RE 399
Sylvía
1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hvalaskoðunarbáturinn Sylvía kemur til hafnar á Húsavík í gær en það er Gentle Giants sem gerir hana út. Sylvía var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1976 og hét upphaflega Sigrún ÞH 169 frá Grenivík. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Sylvía
Álsey VE 2
3000. Álsey VE 2 ex Hardhaus H-120-AV. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2022. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir í nótt þegar Dala-Rafn VE 508 og Álsey VE 2 mættust en Álsey var á landleið. Álsey VE 2 kom til hafnar í Vestmannaeyjum í dag með tæp 1000 tonn af makríl. Álsey VE 2 hét áður Hardhaus H-120-AV … Halda áfram að lesa Álsey VE 2
Strandveiðibátar taka olíu
6836. Jón Jak ÞH 8 - 6969. Lilja ÞH 21. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hér gefur að líta strandveiðibátana Jón Jak ÞH 8 og Lilju ÞH 21 þar sem kallarnir voru að taka olíu eftir róður gærdagsins. Farþegar að tínast um borð í hvalaskoðunarbátinn Garðar í baksýn en hvorki gaf veður til strandveiða né hvalaskoðunar … Halda áfram að lesa Strandveiðibátar taka olíu
Andey BA 125
1170. Andey BA 125 ex Andey SH 242. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Andey BA 125 hét upphaflega Trausti ÍS 300 frá Suðureyri við Súgandafjörð og var smíðaður í Stálvík árið 1971. Hann hafði smíðanúmer 16 hjá Stálvík og var smíðaður eftir teikningu Ágústs G. Sigurðssonar. 1973 er Trausti seldur til Keflavíkur, kaupendur er Magnús Þórarinsson, Jónas … Halda áfram að lesa Andey BA 125









