IMO 9350771. Fembria á Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það var brim við Skjálfanda í dag og síðdegissólin skein þegar þessi mynd var tekin út á Bakkahöfða. Flutningaskip liggur þarna á flóanum en það kom með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka og kemur upp að þegar róast. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Síðdegisól og brim við Skjálfanda
Author: Hafþór Hreiðarsson
Sigurður Jakobsson ÞH 320
973. Sigurður Jakobsson ÞH 320 ex Sigla SI 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Sigurður Jakobsson ÞH 320 kemur hér að bryggju á Húsavík í septembermánuði árið 201 en hann var þá á úthafsrækju. Sigurður Jakobsson hét upphaflega Dagfari ÞH 40 og var smíðaður árið 1965 í Boizenburg A-Þýskalandi fyrir bræðurnar Stefán og Þór Péturssyni á … Halda áfram að lesa Sigurður Jakobsson ÞH 320
Fembria á Skjálfanda
IMO 9350771. Fembria á Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Fembria liggur framundan Húsavíkurhöfða þessa stundina en það er að koma með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Fembria siglir undir fána eyjunnar Mön á Írlandshafi og með heimahöfn í Douglas höfuðstað eyjunnar. Skipið er 117 metrar að lengd og breidd þess er 17 metrar. … Halda áfram að lesa Fembria á Skjálfanda
Vilhelm Þortseinsson EA 11
2982. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér kemur mynd frá því í vor þegar Vilhelm Þorsteinsson EA 11 kom til heimahafnar á Akureyri í fyrsta sinn. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution
Siglufjörður í sumar
Siglufjörður 10. ágúst 2021. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd sem sýnir hluta Siglufjarðar var tekin 10. ágúst í sumar og það var ansi líflegt við höfnina þann dag. Sem og marga aðra daga sumarsins en á myndinni má sjá að löndun stendur m.a yfir úr Huldu GK 17 og Margréti GK 33. Með því að … Halda áfram að lesa Siglufjörður í sumar
Sighvatur GK 57
975. Sighvatur GK 57 ex Bjartur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sighvatur GK 57 lætur hér úr höfn í Grindavík um árið, þarna var búið að skutlengja bátinn og skipta um brú frá því að þessi mynd var tekin. Sighvatur, sem gerður var út af Vísi hf., var einn 18 báta sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga í Boizenburg … Halda áfram að lesa Sighvatur GK 57
Imke kom í dag
IMO 9341756. Imke leggst að Bökugarðinum í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Imke kom til Húsavíkur í dag með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Þetta er þriðja skipið sem kemur með hráefni fyrir PCC í þessari viku en Wilson Nantes lét úr höfn í dag og Imke kom inn í beinu framhaldi af því. Imke … Halda áfram að lesa Imke kom í dag
Jökull ÞH 299
2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Það er nokkuð um liðið síðan Jökull ÞH 299 hefur birst hér á síðunni og því tilvalið að mynda hann í dag en hann var eitthvað að snúast framan við höfnina á Húsavík. Línu- og netaskipið Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og … Halda áfram að lesa Jökull ÞH 299
Rurik kom með farm fyrir PCC
IMO 9375795. Rurik ex Rorichmoor. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Rurik kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum en skipið er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Rurik siglir undir fána Antiqua og Barbadoseyja. Heimahöfn skipsins, sem smíðað var 2006, er Saint John’s. Skipið er 80 metra langt og 12 metra breitt. Það … Halda áfram að lesa Rurik kom með farm fyrir PCC
Sæunn í fjárflutningum
7158. Sæunn ÞH 22 ex Þyrí. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessi mynd var tekin sl. laugardag þegar Sæunn ÞH 22 kom til hafnar á Húsavík með lömb sem höfðu haft sumarbeit í Lundey á Skjálfanda. Hér má sjá aðra mynd frá þessum fjárflutningum. Sæunn er í eigu Sævars Guðbrandssonar og er af Sómagerð. Hét áður Þyrí … Halda áfram að lesa Sæunn í fjárflutningum









