721. Gullþór KE 87 ex Sigurbjörg VE 62. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Gullþór KE 87 kemur hér að landi í Keflavík en þaðan var báturinn gerður út um tveggja ára skeið. Gullþór hét upphaflega Pálmar NS 11 og var smíðaður árið 1946 hjá Skipasmíðastöð Austfjarða á Seyðisfirði. Báturinn var míðaður fyrir Þormar hf. Seyðisfirði og var … Halda áfram að lesa Gullþór KE 87
Month: maí 2023
Wilson Drammen á Húsavík
IMO: 9390094. Wilson Drammen ex Kastor. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Flutningaskipið Wilson Drammen kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Norðurgarði þar sem skipað er upp áburði. Wilson Drammen er 2,452 GT að stærð. Lengd skipsins er 89,7 metrar og breidd þess 12,8 metrar. Skipið var smíða árið 2007 og hét áður Kastor. Það … Halda áfram að lesa Wilson Drammen á Húsavík
Faxi GK 44
51. Faxi GK 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Faxi GK 44 og var smíðaður í Noregi árið 1963 fyrir Einar Þorgilsson & co í Hafnarfirði. Faxi var gerður út af fyrirtækinu í rúmlega 30 ár en á þeim tíma var hann lengdur og yfirbyggður (1977) og síðar skipt um brú. Upphaflega var í honum 450 hestafla … Halda áfram að lesa Faxi GK 44
Skutull
Skutull TH. Ljósmynd Gunnar Hallgrímsson. Í dag eru 75 ár síðan afi minn, Hallgrímur Björnsson bóndi í Sultum í Kelduhverfi (þá á Víkingavatni), keypti bátinn Skutul frá Húsavík. Það var mikið gæfuspor enda fjölskyldan stór og gott að geta dregið björg í bú með því að sækja sjóinn. Flutt var í Sultir árið 1957 en … Halda áfram að lesa Skutull
Lilja ÞH 21
6969. Lilja ÞH 21 ex Manni NS 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarrsson 2023. Hér er verið að landa úr Lilju ÞH 21 í Húsavíkurhöfn á fyrsta degi strandveiða þetta árið. Það er Bjarni Eyjólfsson sem gerir Lilju út en báturinn er af Sómagerð, smíðuð hjá Bátasmiðju Guðmundar hf. í Hafnarfirði árið 1987. Báturinn hét upphaflega Rita … Halda áfram að lesa Lilja ÞH 21
Gimli ÞH 5
6643. Gimli ÞH 5 ex ex Þorfinnur EA 120. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Strandveiðibáturinn Gimli ÞH 5 kemur hér úr róðri í hádeginu í dag en eins og margir vita hófst strandveiðitímabil ársins í gær. Báturinn hét áður Þorfinnur EA 120 en upphaflega hét hann Gamli Valdi RE 480 og var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar … Halda áfram að lesa Gimli ÞH 5
Agla ÁR 79
2871. Agla ÁR 79. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Handfærabáturinn Agla ÁR 79 kemur hér til hafnar í Grindavík fyrir hálfum mánuði eða svo. Agla sem er gerð út af AAH ehf., var smíðuð hjá Mótun ehf. á Sauðárkróki árið 2016. Hún er af gerðinni Gáski 1180. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Agla ÁR 79
Kristín ÞH 55
7526. Kristín ÞH 55 ex Kristín HU 219. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Strandveiðibáturinn Kristín ÞH 55 kom til Húsavíkur áðan en veiðar mega hefjast á morgun. Kristín er gerð út af Möðruvöllum ehf. á Akureyri en er með heimahöfn á Raufarhöfn þaðan sem hún hefur verið gerð út. Landaði í fyrra ýmist á Raufarhöfn eða … Halda áfram að lesa Kristín ÞH 55
Óskar ÞH 208
6009. Óskar ÞH 208. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Óskar ÞH 208 er hér á siglingu á Skjálfanda um árið en hann var smíðaður fyrir Kristján Gunnar Óskarsson árið 1978. Smíði bátsins, sem er rúmlega 2 brl. að stærð, fór fram í Bátasmiðjunni Mótun í Hafnarfirði. Báturinn skipti um eigendur innan bæjar á Húsavík í tvígang. Baldvin … Halda áfram að lesa Óskar ÞH 208
Kristján HF 100
2961. Kristján HF 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Línubáturinn Kristján HF 100 kemur hér til Grindavíkur á dögunum og var að ég held að koma austan af fjörðum. Kristján HF 100 er yfirbyggður Cleopatra 46B beitningavélarbátur frá Trefjum sem var afhentur sumarið 2018. Báturinn er 14 metrar að lengd og mælist 30 brúttótonn. Útgerð Grunnur ehf.. … Halda áfram að lesa Kristján HF 100









