
Skemmtiferðaskipið Sea Spirit hafði viðkomu á Húsavík í dag og var þessi mynd tekin er það lét úr höfn síðdegis.
Skipið siglir undir Portúgölsku flaggi og er með heimahöfn á Madeira.
Sea Spirit var smíðað árið 1991 og mælist 4,200 GT að stærð. Lengd þess er 90,6 metrar og breiddin 15,3 metrar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution