Sigurður VE 15

2883. Sigurður VE 15. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Jón Steinar tók þessa mynd af loðnuskipinu Sigurði VE 15 á dögunum þar sem það var á leið fyrir Reykjanesið. Ísfélag Vestmannaeyja lét smíða Sigurð VE 15 í Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbúl í Tyrklandi og kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum sumarið 2014. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Sigurður VE 15

Kristinn Friðrik GK 58

102. Kristinn Friðrik GK 58 ex Siggi Bjarna GK 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Vélbáturinn Kristinn Friðrik GK 58 kemur hér að landi í Sandgerði á vetrarvertíðinni árið 2004. Báturinn var gerður út af Skipeyri ehf. og var með heimahöfn í Garðinum. Haukur Sigtryggur sendi eftirfarandi miða: 0102....Hrafn Sveinbjarnarson II. GK 10. TF-UY. Skipasmíðastöð: Mandal … Halda áfram að lesa Kristinn Friðrik GK 58

Gísli Súrsson GK 8

2608. Gísli Súrsson GK 8. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Línubáturinn Gísli Súrsson GK 8 frá Grindavík kemur hér að bryggju á Húsavík sumarið 2009. Gísli Súrsson GK 8 var smíðaður árið 2003 hjá Trefjum í Hafnarfirði fyrir Útgerðarfélagið Einhamar í Grindavík (Einhamar Seafood). Báturinn, sem upphaflega var óyfirbyggður, er af gerðinni Cleopatra 38 og er … Halda áfram að lesa Gísli Súrsson GK 8

Erlingur í slipp í Neskaupstað

1379. Erlingur SF 65 ex Haförn EA 955. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Hér má sjá Erling SF 65 þar sem hann er í slipp í Neskaupstað sumarið 2004 en þegar þarna var komið við sögu var hann í eigu Skinneyjar-Þinganess hf. á Höfn. Hér má lesa sögu bátsins en hann hét upphaflega Kópanes BA 99. … Halda áfram að lesa Erlingur í slipp í Neskaupstað

Valdimar SH 106

1487. Valdimar SH 106 ex Alli Júl ÞH 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Rækjubáturinn Valdimar SH 106 frá Grundarfirði liggur hér við bryggju á Húsavík sumartið 2003. Valdimar, sem var í eigu Snæfells ehf., hét upphaflega Ásbjörg ST 9 og var smíðaður í Stykkishólmi árið 1977.Lesa má um sögu bátsins hér. Með því að smella … Halda áfram að lesa Valdimar SH 106

Þorvarður Lárusson SH 129

185. Þorvarður Lársusson SH 129 ex Sigþór ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Rækjubáturinn Þorvarður Lárusson SH 129 liggur hér í höfn á Dalvík í júníbyrjun árið 2004. Hann var í eigu Snæfells ehf. sem keypti hann í ársbyrjun 2002. Upphaflega Sigurpáll GK 375 sem var smíði no.46. frá Marstrands Mekaniska Verkstad A/B. í Marstrand … Halda áfram að lesa Þorvarður Lárusson SH 129

Sørfold F-555-M í Reykjavík 2002

IMO 9251901. Sørfold F-555-M. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Hér birtast myndir af norska loðnuskipinu Sørfold F-555-M sem teknar voru í Reykjavík í júnímánuði árið 2002. Skipið heitir í dag Nordfisk N-1-B og birtist hér á síðunni fyrr í dag. Skipið var smíðað árið 2002 og er því glænýtt þegar myndirnar voru teknar. Smíðin fór fram … Halda áfram að lesa Sørfold F-555-M í Reykjavík 2002