
Rækjubáturinn Þorvarður Lárusson SH 129 liggur hér í höfn á Dalvík í júníbyrjun árið 2004.
Hann var í eigu Snæfells ehf. sem keypti hann í ársbyrjun 2002.
Upphaflega Sigurpáll GK 375 sem var smíði no.46. frá Marstrands Mekaniska Verkstad A/B. í Marstrand í Svíþjóð. Hann kom til landsins í aprílmánuði 1963, eigandi Guðmundur Jónsson útgerðarmaður á Rafnkelstöðum í Garði.
Útgerðarfélagið Vísir hf.á Húsavík keypti bátinn árið 1977 eftir að hann hafði verið endurbyggður í Dráttarbraut Keflavíkur hf. eftir bruna. Þá fékk hann nafnið Sigþór ÞH 100.
Sigþór ÞH 100 var yfirbyggður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1986 og ári síðar var skipt um brú og hann skutlengdur. Þær breytingar fóru fram í Þýskalandi.
Síðla árs 2001 keypti Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. útgerðarfélagið Vísi ehf. og í framhaldinu var Sigþór ÞH 100 seldur.
Hann fékk nafnið Þorvarður Lárusson SH 129 árið 2002 með heimahöfn í Grundarfirði. Síðustu tvo mánuði ársins 2004 hét hann Straumur RE 79 en í ársbyrjun 2005 fékk hann nafnið Valur GK 6 sem var hans síðasta nafn.
Eldur kom upp í bátnum að kveldi 20. mars 2005 þar sem hann lá í Sandgerðishöfn. Báturinn skemmdist það mikið að ekki var talið borga sig að gera við hann og var Valur GK 6 því dreginn í brotajárn erlendis. Sem varð söguleg ferð eins og mbl.is greindi frá.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.