
Loðnuskip Ísfélagsins, Suðurey VE 11, kom til hafnar í Vestmannaeyjum í dag enda bræluspá og það ekkert smá.
Suðurey VE 11 bættist í Eyjaflotann í desember sl. en hún var keypt frá Svíþjóð þar sem hún bar nafnið Ginneton GG 203.
Skipið var smíðað árið 2006 og er 62 metra langt og 13 metra breitt. Það mælist 1,337 BT að stærð og lestarrými þess er 1.348 rúmmetrar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution