2790. Einar Hálfdáns ÍS 11 nú Halldór NS 302. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Áki í Brekku SU 760, sem áður hét Einar Hálfdáns ÍS 11, hefur nú fengið nafnið Halldór NS 302 og heimahöfn hans Bakkafjörður. Eins og áður hefur komið fram á síðunni hafði GPG Seafood ehf. bátaskipti við Gullrúnu ehf. á Breiðdalsvík og … Halda áfram að lesa Nýr Halldór NS 302
Month: september 2021
Svanur RE 45
3015. Svanur RE 45 ex Ilvid GR-18-318 Ljósmynd Gunnþór Sigurgeirsson 2021. Svanur RE 45, sem áður hét Ilvid GR-18-318, er nýjasta skipið í flota Brims en þessa mynd fékk ég senda í síðustu viku. Svanur hét upphaflega Strand Senior og var smíðað árið 1999, lengd skipsins er 67 metrar og breidd þess 13. Það mælist … Halda áfram að lesa Svanur RE 45
FISK Seafood kaupir 60 % hlut í Steinunni SH 167
1134. Steinunn SH 167 ex Ingibjörg RE 10. Ljósmynd Alfons Finnsson 2020. Gengið hefur verið frá samkomulagi um kaup FISK Seafood ehf., í gegnum dótturfélag sitt, á 60% eignarhlut í útgerðarfélaginu Steinunni hf. í Ólafsvík sem gert hefur út vertíðarbátinn Steinunni SH-167. Fimm bræður og fjölskyldur þeirra hafa rekið félagið í u.þ.b. hálfa öld. Eftir kaupin … Halda áfram að lesa FISK Seafood kaupir 60 % hlut í Steinunni SH 167
Sæljón SU 104 á toginu
1398. Sæljón SU 104. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Sæljón SU 104 er hér að toga á rækjuslóðinni um árið en báturinn var gerður út af Friðþjófi hf. á Eskifirði. Báturinn, sem var 142 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Friðþjóf í Slippstöðinni á Akureyri og afhentur árið 1974. Hann var yfirbyggður í Slippstöðinni árið 1980. Sæljón … Halda áfram að lesa Sæljón SU 104 á toginu
Óli á Stað
2842. Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Óli á Stað GK 99 kemur hér til hafnar á Siglufirði í ágústmánuði en hann er gerður út af Stakkavík í Grindavík. Óli á Stað GK 99 var smíðaður fyrir Stakkavík í Seiglu á Akureyri og afhentur vorið 2017. Hann er 14,8 metra langur og … Halda áfram að lesa Óli á Stað
Ambassadeur kom með hráefni til PCC
IMO 9361328. Ambassadeur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Ambassadeur kom til Húsavíkur í gær með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Ambassadeur siglir undir hollensku flaggi með heimahöfn í Zwartsluis. Skipið var smíðað árið 2007 og er 110,78 metra langt og 14 metra breitt. Það mælist 3,990 GT að stærð. IMO 9361328. Ambassadeur. Ljósmyndir Hafþór … Halda áfram að lesa Ambassadeur kom með hráefni til PCC
Wilson Paldiski kom með salt
IMO 9373527. Wilson Paldiski ex Lauren C. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Paldiski lét úr höfn á Húsavík um kvöldmatarleytið en það kom í morgun með salt fyrir GPG Seafood. Skipið var smíðað árið 2007 og siglir undir norsku flaggi með heimahöfn í Bergen. Það er 90 metra langt, 15 metra breitt og mælist … Halda áfram að lesa Wilson Paldiski kom með salt
Halldór mun fá nafnið Áki í Brekku
2672. Halldór NS 302 ex ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessar myndir af Halldóri NS 302 voru teknar í gærkveldi þegar Halldór NS 302 tók smá kvæk út fyrir höfnina á Húsavík aður en honum var siglt til Raufarhafnar. Þetta eru síðustu myndirnar sem ég tek af bátnum undir þessu … Halda áfram að lesa Halldór mun fá nafnið Áki í Brekku
Dúa II í vandræðum
399. Dúa II RE 400 e Aníta KE 399. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Eikarbáturinn Dúa II RE 400 sökk í höfninni í Grindavík í vikunni en þar hefur hún legið utan á nöfnu sinni Dúu RE 404 undanfarin ár. Þetta var s.s sl. mánudag um hádegi en báturinn náðist aftur á flot daginn eftir. "Dúa … Halda áfram að lesa Dúa II í vandræðum
Bergur verður Jóhanna Gísladóttir
2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Bergur VE 44 hefur fengið grænan lit Vísisbátanna og nafnið Jóhanna Gísladóttir GK 357. Eins og komið hefur fram á síðunni keypti Vísir hf. skipið frá Vestmannaeyjum og mun hann koma í stað línuskipsins Jóhönnu Gísladóttur. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Bergur verður Jóhanna Gísladóttir









