2910. Eldey ex M/S Norreborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbáturinn Eldey kemur hér til hafnar í Reykjavík á dögunum en báturinn er í eigu hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar. Á vef fyrirtækisins segir m.a um Eldey: Eldey (áður þekkt sem M/S Sund Buss Erasmus) var byggð árið 1971 af Lindstölds Skips og Båtbyggeri A/S, Risør (Noregi) ásamt systurskipum … Halda áfram að lesa Hvalaskoðunarbáturinn Eldey
Month: september 2021
Björgunarskipið Gísli Jóns
2967. Gísli Jóns. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Björgunarskipið Gísli Jóns frá Ísafirði kom til Hafnarfjarðar um síðustu helgi og þessi mynd tekin þá. Gísli Jóns er eitt af björgunarskipum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og var keyptur frá Noregi árið 2019. Það var smíðað árið 1990. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Björgunarskipið Gísli Jóns
Ebbi AK 37
2737. Ebbi AK 37. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér gefur að líta Ebba AK 37 þar sem hann lá við flotbryggju í heimahöfn sinni á Akranesi í gær. Ebbi AK 37 var smíðaður hjá Seiglu ehf. í Rekjavík árið 2006. Báturinn, sem er tæplega 30 Bt að stærð, var smíðaður fyrir Ebba - útgerð ehf. … Halda áfram að lesa Ebbi AK 37
Rotsund kom til Hafnarfjarðar í gær
IMO 9333644. Rotsund ex Nordkinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Norska flutningaskipið Rotsund kom til Hafnarfjarðar í gær en það ku vera að flytja laxaseiði frá Aberdeen til Þingeyrar. Rotsund hét upphaflega Storfoss og var smíðaður fyrir Eimskip í Vaagland Båtbyggeri AS í Noregi. Skipið er 80 metra langt og 16 metra breitt og mælist 2,990 … Halda áfram að lesa Rotsund kom til Hafnarfjarðar í gær
Jóhanna Gísladóttir GK 357 við bryggju í Reykjavík
2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessi mynd af Jóhönnu Gísladóttur GK 357 var tekin í gær þar sem skipið liggur við bryggju í Reykjavíkurhöfn. Eins og komið hefur fram á síðunni keypti Vísir hf. skipið frá Vestmannaeyjum og mun það koma í stað línuskipsins Jóhönnu Gísladóttur GK … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir GK 357 við bryggju í Reykjavík
Dýri BA 98
6739. Dýri BA 98. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Dýri BA 98 kom til hafnar í Hafnarfirði í gær en þar var hann einmitt smíðaður árið 1986. Það var í Bátasmiðju Guðmundar en báturinn er Sómi 860. Báturinn hefur alla tíð borið þetta nafn, einkennisstafi og númer en heimahöfn hans er Brjánslækur. Dýri er í eigu … Halda áfram að lesa Dýri BA 98
Keilir kemur til Reykjavíkur
2946. Keilir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessar myndir sem nú birtast voru teknar nú síðdegis þegar olíuskipið Keilir kom til Reykjavíkur og já, sólin skein. Keilir er í eigu Olíudreifingar og var míðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Hann kom til landsins í febrúarmánuði árið 2019. Keilir, sem leysti Laugarnes af hólmi í olíuflutningunum, siglir … Halda áfram að lesa Keilir kemur til Reykjavíkur
Ný Cleopatra 36 til Fosnavåg í Noregi
Nærøybuen M-50-HØ. Ljósmynd Trefjar 2021. Kjell-Børre Petersen útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Kjell-Børre verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem verður gerður út til netaveiða. Búnaður til netaveiða kemur frá Noregi en báturinn hefur þegar hafið veiðar. Báturinn, sem fékk nafnið Nærøybuen M-50-HØ, er 10.99 metrar … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36 til Fosnavåg í Noregi
Bylgja VE 75
2025. Bylgja VE 75. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Togskipið Bylgja VE 75 kom til Reykjavíkur síðdegis í gær og voru þessar myndir teknar þá. Svona nýmáluð og fín. Bylgja VE 75 var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Mattíhas Óskarsson útgerðarmann og skipstjóra árið 1992. Hún hefur alla tíð verið í eigu hans en fyrirtækið … Halda áfram að lesa Bylgja VE 75
Aðalbjörg RE 5
1755. Aðalbjörg RE 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Aðalbjörg RE 5 kom til hafnar í Reykjavík nú undir kvöld og voru þessar myndir teknar þá. Aðalbjörg er á dragnót sem fyrr en þessa dagana er hún við veiðar í Faxaflóa. Aðalbjörg RE 5 var smíðuð hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1987 og lengd árið 1995. Báturinn … Halda áfram að lesa Aðalbjörg RE 5









