1750. Sæfari SH 104 ex Vinur ÞH 73. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Vinur ÞH 73 hefur verið seldur til Stykkishólms þar sem hann fékk nafnið Sæfari SH 104. Það er Hólmurinn ehf. sem mun gera bátinn út. Báturinn, sem kemur úr smiðju Baldurs á Hlíðarenda við Akureyri, var smíðaður árið 1986 og hét Matthildur EA … Halda áfram að lesa Sæfari SH 104
Month: júní 2020
Lilja ÞH 21
6603. Lilja ÞH 21 ex Einar EA 209. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Tók þessa mynd fyrir stundu þegar strandveiðibáturinn Lilja ÞH 21 kom að landi á Húsavík. Lilja ÞH 21 hét áður Einar EA 209 og var smíðaður í Plastgerðinni sf. í Kópavogi árið 1984. Báturinn er tæplega 6 brl. að stærð. Lilja hét upphaflega … Halda áfram að lesa Lilja ÞH 21
Esjar SH 75
2330. Esjar SH 75. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2020. Elvar Jósefsson tók þessa mynd af dragnótarbátnum Esjari SH 75 áleið til hafnar á Rifi. Esjar SH 75, sem er gerður út af samnefndu fyrirtæki, var smíðaður hjá Ósey í Hafnarfirði árið 1999 og hefur alla tíð heitið sama nafni. Báturinn var lengdur árið 2002 og mælist … Halda áfram að lesa Esjar SH 75
Lauralex II
Lauralex II SN 953 470. Ljósmynd Magnús Jónsson 2020. Maggi Jóns tók þessa um sl. fimmtudag en báturinn fór á flot þann dag en þetta er nýsmíði frá Trefjum. Veit ekkert nánar um bátinn enn sem komið er annað en það að hann er Cleopatra 33 og heitir Lauralex II. Þetta kemur allt síðar. Með … Halda áfram að lesa Lauralex II
Halldór NS 302
2672. Halldór NS 302 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Halldór NS 302 sést hér á myndum Jóns Steinars leggja upp í línuróður frá Bakkafirði í vikunni. Halldór NS 302, sem er í eigu Halldórs fiskvinnslu ehf. á Bakkafirði, hét upphaflega Óli á Stað GK 99 og var smíðaður í Njarðvík … Halda áfram að lesa Halldór NS 302
Örn KE 14
2313. Örn KE 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Á þessari mynd sést Örn KE 14 koma að landi í Keflavík eftir dragnótaróður í Bugtina. Örn KE 14 Örn var nýsmíði nr. B22 frá Crist skipasmíðastöðinni í Gdansk, Póllandi. Báturinn er 159 brúttótonn að stœrð, 8 metra breiður og um 22 metrar að lengd. Örn var smíðaður … Halda áfram að lesa Örn KE 14
1420 kominn á flot aftur
1420. ex Keilir SI 145. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Fyrrum Keilir SI 145 fór á flot í dag eftir að hafa verið í slipp á Húsavík síðan í september en þar var honum breytt í skemmtibát af flottustu gerð. Það eru einhverjir dagar, eða vikur, í að hann verði klár en það voru teknar nokkrar … Halda áfram að lesa 1420 kominn á flot aftur
Whales EA 200 við bryggju á Hauganesi
500. Whales EA 200 ex Gunnar Hámundarson GK 357. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hvalaskoðunarbáturinn Whales EA 200 liggur hér við flotbryggjuna á Hauganesi í gær og einnig má sjá Níels Jónsson EA 106. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view … Halda áfram að lesa Whales EA 200 við bryggju á Hauganesi
Til hamingju með daginn sjómenn
2618. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Birkeland. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Með þessari mynd sem sýnir Björgu Jónsdóttur ÞH 321 á skemmtisiglingu á Skjálfanda árið 2005 sendi ég sjómönnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir í tilefni Sjómannadagsins. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Til hamingju með daginn sjómenn
Ólafur Bjarnason SH 137
1304. Ólafur Bjarnason SH 137. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Ólafur Bjarnason SH 137 var smíðaður hjá Þorgeir & Ellert hf. á Akranesi árið 1973. Það var Valafell hf. í Ólafsvík sem lét smíða bátinn og hefur átt hann og gert út alla tíð. Báturinn var skutlengdur um árið og þá hefur verið byggt yfir hann og … Halda áfram að lesa Ólafur Bjarnason SH 137









