
Inga NK 4 frá Norðfirði kom til Húsavíkur í marsmánuði árið 2011 en báturinn var að kanna sæbjúgnamið við Norðurland.
Ekki löngu seinna þetta ár var báturinn, sem upphaflega hét Brík BA 2 og var tæplega 30 brl. að stærð. seldur til Noregs.
Brík BA 2 var smíðuð á Ísafirði fyrir Bílddælinga árið 2000. Seld til Suðurnesja árið 2007 og þar fékk hún Ásdísarnafnið. Seldur á Neskaupstað árið 2010 þar sem hann fékk nafnið Inga NK 4. Hún er tæplega 30 brl. að stærð.
Eins og áður segir var Inga NK 4 var seld til Noregs árið 2011 og bar fyrst nafnið Leithe N-8-G með heimahöfn í Bodø. Árið eftir er skráningunni breytt í N-8-ME en áfram í eigu sama fyrirtækis. Fær nafnið Vea Fisk R-41-K á árinu 2014 og gerð út frá Karmøy.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution


