
Hebridean Sky er eitt þeirra skemmtiferðaskipa sem koma til Húsavíkur í sumar og hafði það viðdvöl þar í gær.
Áki Hauksson skrifar á Fésbókarsíðu sína að þetta sé eitt af þremur systurskipum sem byggð voru á sama tíma. Það er útgerðarfélagið Noble Caledonia sem á skipið í dag en útgerðin keypti skipið árið 2014 og átti þá fyrir hin systurskip Hebridean Sky, þau Island Sky Caledonian Sky.
„Systurskipin voru byggð af skipasmíðastöð Nuovi Cantieri Apuania á Ítalíu á svipuðum tíma en Hebridean Sky var tekið í notkun í Desember 1991. Skipið er 90,38 metra langt, 30 metra breitt og nær 14,5 mílna hraða og hefur verið gert út á suður-skautið aðallega í gegnum árin enda skipið byggt fyrir ís. Skipið getur tekið 120 farþega í 59 svítum um borð og lúxusinn um borð er ekki af verri endanum“. Skrifar Áki m.a um skipið.
Þess má geta að Caledonian Sky kom til Húsavíkur í júnímánuði 2011.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.