Eirik H-18-S

Erik H-18-S. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Bátasmiðjan Seigla á Akureyri afhenti þennan bát, Eirik H-18-S til Noregs í aprílmánuði árið 2012. Á þessum myndum er hann í reynslusiglingu á Eyjafirði en hélt áleiðis til Noregs síðar þennan dag sem var 14. dagur aprílmánaðar. Eirik, sem var með heimahöfn í Skogsvåg, heitir í dag Moagutt M-18-M. … Halda áfram að lesa Eirik H-18-S

Erika GR-18-119

Erika GR-18-119 ex Birtingur NK 119. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Grænlenska loðnuskipið Erika GR-18-119 lætur hér úr höfn á Húsavík í janúarmánuði árið 2012. Erika hét upphaflega Hákon ÞH 250 og var smíðuð fyrir Gjögur h/f í Ulsteinsvik, Noregi árið 1987. Skipið er 820 brúttórúmlestir, 57 metrar að lengd og 12,5 metrar að breidd.  Þegar … Halda áfram að lesa Erika GR-18-119

Hásteinn og Múlaberg við bryggju í Þorlákshöfn

1751. Hásteinn ÁR 8 ex Örn VE 244. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir í Þorlákshöfn í morgun en þær sýna dragnótabátinn Hástein ÁR 8 og skuttogarann Múlaberg SI 32. Múlaberg SI 22 ex Múlaberg ÓF 32. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Múlaberg SI 22 er annar tveggja svokölluðu Japanstogara sem eftir eru … Halda áfram að lesa Hásteinn og Múlaberg við bryggju í Þorlákshöfn

Keilir, nýtt skip Olíudreifingar

2946. Keilir. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Keilir, nýtt skip Olíudreifingar, kom til Reykjavíkurhafnar á dögunum en hann var smíðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Skipið, sem mun leysa olíuskipið Laugarnes af hólmi, siglir undir íslenskum fána og er 378 brúttótonn að stærð. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

Wilson Mersin lætur úr höfn á Húsavík

Wilson Mersin ex Ramnes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Ég tók nokkrar myndir nú síðdegis þegar Wilson Mersin lét úr höfn á Húsavík eftir að hafa lestað afurðir frá PCC á Bakka. Nánar má lesa um skipið í færslu hér að neðan sem birtist í dag. Wilson Mersin ex Ramnes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Wilson Mersin … Halda áfram að lesa Wilson Mersin lætur úr höfn á Húsavík

Guðmundur St. sigraði í norrænni ljósmyndakeppni

Gömul vísindi og ný. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2019. Guðmundur St. Valdimarsson, bátsmaður á varðskipinu Tý, sigraði í ljósmyndakeppni sjómanna á Norðurlöndum. Þetta er í annað sinn sem Guðmundur sigrar í keppninni. Ljósmyndin sem Guðmundur kallar Gömul vísindi og ný sigraði einnig í ljósmyndakeppni sjómannablaðsins Víkings í fyrra. Úrslitin voru kunngjörð í dag en Guðmundur vann keppnina … Halda áfram að lesa Guðmundur St. sigraði í norrænni ljósmyndakeppni

Wilson Mersin í höfn á Húsavík

Wilson Mersin við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Í morgun kom flutningaskipið Wilson Mersin til hafnar á Húsavík eftir siglingu frá Grundartanga. Skipið lagðist að Bökugarðinum þar sem fljótlega var hafist handa við að skipa út afurðum frá PCC á Bakka. Wilson Mersin var smíðað árið 1981 og siglir undir kýpverskum fána með heimahöfn í … Halda áfram að lesa Wilson Mersin í höfn á Húsavík

Þegar Hera ÞH 60 kom til heimahafnar í fyrsta skipti

67. Hera ÞH 60 ex Óli Hall HU 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Hera ÞH 60 kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Húsavík 23. febrúar 2008 og voru þessar myndir teknar þá. Hera ÞH 60 var í eigu útgerðarfélagsins Flóka ehf. en hún er 229 brúttótonna stálbátur, smíðaður í Noregi 1962. 67. Hera ÞH … Halda áfram að lesa Þegar Hera ÞH 60 kom til heimahafnar í fyrsta skipti

Sindri VE 60 orðinn Campelo 2 í Jakobslandi

1274. Sindri VE 60 ex Páll Pálsson ÍS 102. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2019. Vinnslustöðin hefur selt og afhent nýjum eigendum togarann Sindra VE-60,  útgerðarfyrirtæki í bænum Marin í sjálfstjórnarhéraðinu Galisíu eða Jakobslandi í norðvesturhluta Spánar. Í Galisíu endar einmitt helgigönguleiðin Jakobsvegur sem margir íslenskir göngugarpar þekkja og hafa þrammað. Sindri VE valdi hins vegar sjóleiðina … Halda áfram að lesa Sindri VE 60 orðinn Campelo 2 í Jakobslandi