Pálína Þórunn á Siglufirði

2449. Pálína Þórunn GK 49 ex Steinunn SF 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Togbáturinn Pálína Þórunn GK 49 frá Sandgerði er hér við bryggju á Siglufirði fyrir skömmu. Pálína Þórunn GK 49 hét áður Steinunn SF 10 en eins og margir vita keypti Nesfiskur hf. hana af Skinney-Þinganesi hf. í fyrra. Pálína Þórunn GK 49 … Halda áfram að lesa Pálína Þórunn á Siglufirði →

Geir ÞH 150

2408. Geir ÞH 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Þórshafnarbáturinn Geir ÞH 150 er einn þeirra báta sem hafa stundað dragnótaveiðar á Skjálfanda síðustu daga. Geir ÞH 150 var smíðaður fyir samnefnt útgerðarfélag hjá Ósey  í Hafnarfirði árið 2000 og hafði smíðanúmer 8 frá stöðinni. Báturinn er 22 metrar að lengd, 6,99 metra breiður og mælist … Halda áfram að lesa Geir ÞH 150 →

Meira af Fönix

2811. Fönix BA 123. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Á dögunum birtust myndir af Fönix BA 123 láta úr höfn á Húsavík og sýndu stjórnborðssíðu bátsins. Nú koma myndir sem sýna bakborðssíðu bátsins sem Krossi-útgerðarfélag ehf. á Patreksfirði á og gerir út. Báturinn er tæp 15 BT að stærð búinn 302 kw Cumminsvél. Smíðaár 2011. 2811. … Halda áfram að lesa Meira af Fönix →

Dylhháris H101

Dylháris H101. Ljósmynd Magnús Jónsson 2020. Maggi Jóns tók þessar myndir í gær af nýsjósettri Cleopötru 50 þar sem hún lá í Hafnarfjarðarhöfn. Dylháris heitir hún og er með heimahöfn í Bridlington á Englandi. Látum þetta duga þar til meiri upplýsingar koma frá Trefjum. Dylháris H101. Ljósmynd Magnús Jónsson 2020. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Dylhháris H101 →

Harðbakur á toginu

2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndasyrpu í dag af Harðbak EA 3 þar sem hann var að veiðum á Skrúðsgrunni. Harðbakur er í eigu Útgerðarfélags Akureyringa hf. og er eitt sjö togskipa sem Vard skipasmíðastöðin smíðaði fyrir íslendinga. 2963. Harðbakur EA 3. Ljósmyndir Hólmgeir Austfjörð 2020. Með því að … Halda áfram að lesa Harðbakur á toginu →

Ísey EA 40 landaði á Húsavík

1458. Ísey EA 40 ex Ísey ÁR 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Dragnótabáturinn Ísey EA 40 landaði á Húsavík í dag eftir veiðar á Skjálfanda en 1. september er heimilt að veiða í innanverðum flóanum. Báturinn er gerður út af Hrísey Seafood ehf. og er með heimahöfn í Hrísey Áður var báturinn gerður út af … Halda áfram að lesa Ísey EA 40 landaði á Húsavík →

Tómas Þorvaldsson kom að landi í gær

2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK 10 kom til hafnar í Grindavík í blálok kvótaársins og tók Jón Steinar þessar myndir þá. Togarinn var smíðaður í Noregi árið 1992 fyrir Skagstrending hf. á Skagaströnd og hét þá Arnar HU 1. Arnar var seldur til Grænlands … Halda áfram að lesa Tómas Þorvaldsson kom að landi í gær →