2997. Einar Guðnason ÍS 303. Ljósmynd Trefjar 2021. Útgerðarfélagið Norðureyri ehf. á Suðureyri fékk í síðustu viku afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50 beitningavélarbát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Íslandssaga ehf. tekur við afla bátsins og er einn eigandi Norðureyrar. Framkvæmdastjóri Íslandsögu ehf. er Óðinn Gestsson. Báturinn heitir Einar Guðnason ÍS 303 og er 15 metrar … Halda áfram að lesa Nýr Einar Guðnason ÍS 303 til Suðureyrar
Kolbeinsey sjósett
1576. Kolbeinsey ÞH 10. Ljósmynd Árni Vilhjálmsson 1981. Þessar myndir sem nú birtast af sjósetningu skuttogarans Kolbeinseyjar ÞH 10 frá Húsavík þann febrúar 1981 tók Árni Vilhjálmsson á Húsavík. Árni hafði samband fyrir nokrum árum og sagðist hafa myndir handa mér ef ég vildi eiga en þær voru frá sjósetningu Kolbeinseyjar um árið. Það er … Halda áfram að lesa Kolbeinsey sjósett
Enok AK 8
1666. Enok AK 8 ex Stapavík AK 132. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Enok AK 8, sem hér kemur að landi í Grindavík vorið 1999, var smíðaður árið 1983 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Upphaflega hét báturinn Stakkur RE 186 og var 11,63 brl. að stærð, búinn 115 hestafla G.M vél. Eigendur Sæmundur Rögnvaldsson og … Halda áfram að lesa Enok AK 8
Árni Jónsson KE 109
1958. Árni Jónsson KE 109 ex Patrekur BA 66. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Línubáturinn Árni Jónsson KE 109 kemur hér að landi í Grindavík í aprílmánuði árið 1999. Báturinn var smíðaður 1988 í Svíþjóð og hét upphaflega Mikley SF 128. Í Dagblaðinu Vísi kom þessi frétt þann 28. desember 1988: Nýr bátur, Mikley SF 128, … Halda áfram að lesa Árni Jónsson KE 109
Guðmundur Ólafur í slipp á Akureyri
1020. Guðmundur Ólafur ÓF 91 ex Krossanes SU 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Guðmundur Ólafur ÓF 91 frá Ólafsfirði er hér uppi í slippnum á Akureyri um árið en hann var keyptur til Ólafsfjarðar í ársbyrjun 1983. Upphaflega hét skipið Börkur NK 122 frá Neskaupstað, smíðaður í Noregi árið 1966. Árið 1972 fékk hann nafnið Bjarni … Halda áfram að lesa Guðmundur Ólafur í slipp á Akureyri
Hákon ÞH 250
1807. Hákon ÞH 250. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1989. Nóta- og togskipið Hákon ÞH 250 frá Grenivík er hér að rækjuveiðum úti fyrir Norðurlandi sumarið 1989. Hákon kom til landsins í desembermánuði 1987 en frá komu hans sagði svo í 4 tbl. Ægis 1988: Nýtt nóta- og togveiðiskip bættist við fiskiskipastól Íslendinga 18. desembers.l., en þá … Halda áfram að lesa Hákon ÞH 250
Diddó ÍS 232
369. Diddó ÍS 232 ex Diddó RE 232. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Diddó ÍS 232 hét alla tíð þessu nafni en upphaflega var hann Diddó BA 45 með heimahöfn á Patreksfirði. Báturinn, sem var 8 brl. að stærð, var smíðaður úr furu og eik í Bátalóni í Hafnarfirði fyrir Þorstein Friðþjófsson á Patreksfirði. Hann var búinn … Halda áfram að lesa Diddó ÍS 232
Magnús SH 205
1264. Magnús SH 205 ex Steinunn SF 40. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Magnús SH 205 er hér nýskveraður að koma að bryggju í slippnum á Akranesi en báturinn var gerður út af Skarðsvík ehf. á Hellissandi. Saga bátsins kom fram hér á síðunni á dögunum enn hann hét upphaflega Steinunn SF 10 á íslenskri skipaskrá. Á … Halda áfram að lesa Magnús SH 205
Rán ÞH 141
6501. Rán ÞH 141 ex Gæsi NS 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rán ÞH 141, sem var í eigu Smára Gunnarssonar á Húsavík, var smíðuð í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1983 og hét upphaflega Máni RE 173. Á árunum 1985 til 1987 var báturinn á Húsavík undir nafninu Dísa ÞH 374 en þaðan fór hann … Halda áfram að lesa Rán ÞH 141
Lómur SH 177
368. Lómur SH 177 ex Sif HU 39. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Lómur SH 177 kemur hér að landi í Ólafsvík um árið og ef ég man rétt var ég við það að missa af þessu tækifæri til að mynd hann. Það skýrir kanski bílinn hér í vinstra horninu, ekki bara bílspegill þarna á ferðinni heldur … Halda áfram að lesa Lómur SH 177









