Björgum Blátindi

Ályktun stjórnar Sambands íslenskra sjóminjasafna um Blátind VE 21 347. Blátindur VE 21. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Stjórn Sambands íslenskra sjóminjasafna tekur heilshugar undir með Hollvinafélögum Húna II á Akureyri og Magna í Reykjavík að skora á framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja að falla frá samþykkt um að farga bátnum Blátindi VE 21. Vestmannaeyjar hafa verið ein … Halda áfram að lesa Björgum Blátindi →

Hrímbakur í slipp

1473. Hrímbakur EA 306 ex Bjarni Herjólfsson ÁR 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. ÚA togarinn Hrímbakur EA 306 er hér í slipp á Akureyri um árið en hann hét upphaflega Bjarni Herjólfsson ÁR 200 og var smíðaður í Póllandi árið 1977. Hrímbakur EA 306 var 488 brl. að stærð búinn 2200 hestafla Sulser aðalvél. Útgerðarfélag Akureyringa … Halda áfram að lesa Hrímbakur í slipp →

Kaldbakur og Harðbakur við ÚA bryggjuna

1395. Kaldbakur EA 1 og 1412. Harðabakur EA 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Hér liggja Spánartogararnir Kaldbakur EA 1 og Harðbakur EA 3 (fjær) við ÚA bryggjuna á Akureyri í júlímánuði árið 2004. Þeir voru smíðaðir fyrir ÚA í Astilleros Luzuriaga S.A. skipa­smíðastöðinni í Pasaj­es de San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni. Kaldbakur … Halda áfram að lesa Kaldbakur og Harðbakur við ÚA bryggjuna →

Grímsnes GK 555

89. Grímsnes GK 555 ex Grímsnes BA 555. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Grímsnes GK 555 lá fyrir linsunni hjá Jóni Steinari í gær þegar báturinn kom til hafnar í Grindavík. Grímsnes GK 55 er gert út af Hólmgrími Sigvaldasyni. Upphaflega Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði, smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk As í Noregi … Halda áfram að lesa Grímsnes GK 555 →