Mark fyrir utan Grindavík

IMO:9690688.  Mark ROS 777. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Þýski frystitogarinn Mark kom upp að Grindavík í fyrrinótt, sennilega í þeim erindagjörðum setja menn í land. Jón Steinar tók meðfylgjandi mynd og sagði m.a á síðu sinni: Hann kom hér upp að landinu úr vestri og hélt svo hér austur með eftir að hafa skilað … Halda áfram að lesa Mark fyrir utan Grindavík →

Westborg við Bökugarðinn

IMO 9196187. Westborg ex Sabinia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Westborg kom til Húsavíkur snemma í morgun og lagðist að Bökugarðinum hvar nú er verið að skipa út afurðum frá PCC á Bakka. Westborg, sem áður hét Sabinia, var smíða árið 2000 og siglir undir Hollensku flaggi. Heimahöfn Rotterdam. Skipið er 89 metra langt, 12 … Halda áfram að lesa Westborg við Bökugarðinn →

NG Endurance kom til Húsavíkur

IMO:9842554. National Geographic Endurance. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Farþegaskipið National Geographic Endurance kom til Húsavíkur síðdegis í gær og lét aftur úr höfn síðar um kvöldið. NG Endurance var smíðað árið 2020 og er í sinni jómfrúarferð. Á vef Faxa­flóa­hafna segir frá því að skipinu hafi formlega verið gefið nafn í Reykjavík á dögunum. Þar segir einnig: … Halda áfram að lesa NG Endurance kom til Húsavíkur →

Crystal Endeavor á Skjálfanda

IMO 9821873. Crystal Endeavor á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Skemmti­ferðaskipið Crystal Endea­vor, sem er í jóm­frú­ar­ferð sinni við Íslands­strend­ur, kom til Húsavíkur í dag og lét aftur úr höfn eftir kvöldmat. Á myndinni er skipið að skríða af stað og hafnsögubáturinn Sleipnir að snúa til hafnar. Skipið sem er sex stjörnu lúx­ussnekkja upp frá Reykja­vík­ … Halda áfram að lesa Crystal Endeavor á Skjálfanda →

Garðar

260. Garðar ex Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Norðursiglingarbáturinn Garðar kemur hér úr hvalaskoðunarferð eftir hádegi í dag en renniblíða var á Skjálfandaflóa. Garðar hét upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá Ólafsvík. Smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Dverg hf. í Esbjerg í Danmörku árið 1964. Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn … Halda áfram að lesa Garðar →

Breytingar á skipastól Síldarvinnslunnar

2677. Bergur VE 44 ex Brodd 1. Ljósmynd Þór Jónsson 2021. Bergur ehf. í Vestmannaeyjum hefur samþykkt sölu á Berg VE 44 til Vísis í Grindavík. Skipið verður afhent nýjum eigendum í ágúst á þessu ári.  Í tilkynningu á vef Síldarvinnslunnar kemur fram að Bergur er með tæplega 1600 þorskígildi, en skipið er selt án aflaheimilda. … Halda áfram að lesa Breytingar á skipastól Síldarvinnslunnar →

Tímamót í lífi manns

Gísli V. Jónsson á brúarvængnum á Páli Jónssyni GK.Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Í gær sigldi Gísli V. Jónsson skipi sínu, Páli Jónssyni GK 7, í síðasta sinn til hafnar í heimahöfn í Grindavík. Jón Steinar var með myndavélina á lofti og tók meðfylgjandi myndir af Páli Jónssyni GK 7 sem og kallinum en á … Halda áfram að lesa Tímamót í lífi manns →

Ronja Tind á Húsavík

IMO 9743801. Ronja Tind ex Oytind.Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Brunnskipið Ronja Tind er á Húsavík í dag að taka seiði frá Rifósi og flytja austur á firði. Donnalaks var hér sömu erinda um helgina. Ronja Tind var smíðuð í Aas-skipasmíðastöðinni í Vestnes, Noregi árið 2015 og hét upphaflega Oytind. Ronja Tind er 70 metra langt … Halda áfram að lesa Ronja Tind á Húsavík →

Hathor kom með drumba

IMO 9373280. Hathor. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Hathor kom til Húsavíkur um helgina og lagðist að Bökugarðinun þar skipað var upp trédrumbum fyrir PCC á Bakka. Skipið var smíðað árið 2007 og siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Midwolda. Þða er 89 metra langt, 13 metra breitt og mælist 2,545 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Hathor kom með drumba →