Garðar og Náttfari

260. Garðar (fjær) og 993. Náttfari. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbátarnir Garðar og Náttfari mætast hér í hafnarmynninu á Húsavík en myndn var tekin í dag. Garðar hét upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá Ólafsvík. Smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Dverg hf. í Esbjerg í Danmörku árið 1964. Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn … Halda áfram að lesa Garðar og Náttfari →

Einar Hálfdáns – Áki í Brekku

2790. Einar Hálfdáns ÍS 11 nú Áki í Brekku SU 760. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Einar Hálfdáns ÍS 11 sem nú heitir samkvæmt skipaskrá Áki í Brekku SU 760 landaði á Húsavík í morgun en báturinn er á handfærum. Hann er í eigu Gullrúnar ehf. á Breiðdalsvík en fyrirtækið hafði bátaskipti við Vébjarnarnúp ehf. í … Halda áfram að lesa Einar Hálfdáns – Áki í Brekku →

Víkingar

7361. Aron ÞH 105 - 7465. Jökull ÞH 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér gefur að líta Aron og Jökull en báðir eru bátarnir af Víking-gerð frá Bátasmiðjunni Samtak í Hafnarfirði. Myndin var tekin nú í morgunsárið á Húsavík en þar hefur Aron heimahöfn en Jökull á Kópaskeri. Aron, sem hefur verið lengdur, hét upphaflega … Halda áfram að lesa Víkingar →

Varðskipið Týr

1421. V/S Týr á Skjálfandaflóa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Varðskipið Týr kom til Húsavíkur síðdegis í dag og lagðist við Bökugarðinn og það ekki í fyrsta skipti. Spurning hvort þetta hafi verið í síðasta skipti. Týr var smíðaður í Danmörku og kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Reykjavík sumarið 1975. Hér má lesa ágrip … Halda áfram að lesa Varðskipið Týr →

Stálvík SI 1 við bryggju á Siglufirði

1326. Stálvík SI 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Stálvík SI 1 er hér við bryggju á Siglufirði, sennilega vorið eða sumarið 1989. Stálvík var fyrsti skuttogarinn sem smíðaður var á Íslandi og fór smíðin fram árið 1973 í Stálvík hf. í Garðabæ. Togarinn var smíðaður fyrir Þormóð ramma hf. á Siglufirði og var 314 brl. … Halda áfram að lesa Stálvík SI 1 við bryggju á Siglufirði →

Þröstur ÓF 42

6931. Þröstur ÓF 42 ex Smári ÓF 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Strandveiðibáturinn Þröstur ÓF 42 kemur hér að landi á Siglufirði fyrir skömmu en hann hét upphaflega Smári ÓF 20 en hann var smíðaður hjá Bátagerðinni Samtak ehf. í Hafnarfirði árið 1987. Það er Frímann Ingólfsson sem á og gerir Þröst út en hann … Halda áfram að lesa Þröstur ÓF 42 →

Ný Cleopatra 50 til Lófóten í Noregi

Nygrunn N-225-VV. Ljósmynd Trefjar 2021. Útgerðarfélagið Nygrunn AS í Lófóten í Noregi fékk nýverið afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50 netabát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Eigendur Nygrunn AS eru bræðurnir Ørjan og Ketil Sandnes. Nýi báturinn heitir Nygrunn og er 15 metrar á lengd og mælist 30 brúttótonn. Báturinn leysir af hólmi eldri eikarbát útgerðarinnar sem … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 50 til Lófóten í Noregi →

Lúxussnekkjan Satori kom til Húsavíkur

IMO:1013078. Satori. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Lúxussnekkjan Satori kom til Húsavíkur nú í hádeginu eftir siglingu frá Akureyri. Satori er tveggja skrúfu skip, knúið af tveimur 1876 hestafla vélum og siglir undir fána Cayman eyja. Snekkjan, sem er 63 metrar að lengd og 11,9 metra breidd, mælist 1,584 GT að stærð. Hún var smíðuð hjá … Halda áfram að lesa Lúxussnekkjan Satori kom til Húsavíkur →

Hríseyjarferjan Sævar

2378. Sævar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hríseyjarferjan Sævar kemur hér að landi á Árskógssandi á dögunum en hún er með heimahöfn í Hrísey. Sævar var smíðaður í Reykjavík árið 1999 en kom fyrst til Hríseyjar sumarið 2000. Sævar mælist 149 BT að stærð. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Hríseyjarferjan Sævar →