459. Glaður ÞH 150 ex Glaður KE 67. Ljósmynd Pétur Jónasson. Glaður ÞH 150 var gerður út frá Húsavík árin 1968-1793 en hann var keyptur frá Keflavík þar sem hann hét Glaður KE 67. Glaður hét upphaflega Þórarinn RE 42 og var smíðaður í Danmörku árið 1953 fyrir Jón Þórarinsson í Reykjavík. Árið 1956 kaupir … Halda áfram að lesa Glaður ÞH 150
Bugoe kom til Húsavíkur í morgun
IMO 9376775. Bugoe á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Bugoe kom til Húsavíkur í morgun með trjádrumba fyrir kísilver PCC á Bakka. Bugoe, sem var smíðað árið 2008, er 107 metra langt, 15 metra breitt og mælist 4,102 GT að stærð. Skipið siglir undir fána Portúgals og er með heimahöfn á Madeira. IMO 9376775. … Halda áfram að lesa Bugoe kom til Húsavíkur í morgun
Kristbjörg ÞH 44
541. Kristbjörg ÞH 44 ex Hallsteinn EA 130. Ljósmynd Pétur Jónasson. Það er vel í Kristbjörginni þarna og heyskapur í fullum gangi í brekkunni en Olgeir Sigurgeirsson í Skálabrekku gerði bátinn út ásamt sonum sínum Siguði og Hreiðari. Báturinn var smíðaður í Danmörku 1934 og hét upphaflega Ægir GK 8, 22 brl. að stærð, og … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44
Le Champlain á Skjálfanda
IMO: 9814038. Le Champlain á Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skemmtiferðaskipið Le Champlaine kom til Húsavíkur snemma í morgun og lagði síðan úr höfn um miðjan dag. Le Champlaine var smíðað árið 2018 hjá Vard Group AS í Noregi, það er 131, 46 metrar að lengd og 18 metra breitt. Það mælist 9,976 GT … Halda áfram að lesa Le Champlain á Skjálfanda
Eydís NS 320
2374. Eydís NS 320 ex Sölvi BA 19. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Eydís NS 320 liggur hér við bryggju á Borgarfirði eystra fyrir nokkru, klár í næsta róður. Báturinn var smíðaður í Trefjum árið 1999 og var með heimahöfn á Bíldudal til ársins 2006. Þá var hann seldur til Borgarfjarðar eystri og fékk það nafn … Halda áfram að lesa Eydís NS 320
Þokuloft við ströndina
IMO 9160334. Vechtborg við Bökugarðinn á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Það var þoka á Skjálfandaflóa í morgun og teygði hún sig inn á Húsavíkina um tíma en henni létti þegar líða tók á daginn. Meðfylgjandi myndir voru teknar á milli kl. 10 og 11. Flutningaskip lá við Bökugarðinn og þegar dróananum var lyft nokkuð … Halda áfram að lesa Þokuloft við ströndina
Vechtborg kom til Húsavíkur í morgun
IMO 9160334. Vechtborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Vechtborg kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinun þar sem skipað verður upp hráefnisfarmi til PCC á Bakka. Skipið, sem var smíðað 1998, er 133 metra langt, breidd þess er 16 metrar og það mælist 6,130 GT að stærð. Vechtborg siglir undir fána Hollands með … Halda áfram að lesa Vechtborg kom til Húsavíkur í morgun
Elín ÞH 7
7683. Elín ÞH 7 ex Karen Dís SU 87. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Strandveiðibáturinn Elín ÞH 7 kemur hér að landi á Húsavík í gær en báturinn er gerður út af Viðari Sigurðssyni og Elínu Hartmannsdóttur. Elín Hét áður Karen Dís SU 87 og var smíðuð árið 2010 og var með heimahöfn á Stöðvarfirði. Viðar … Halda áfram að lesa Elín ÞH 7
Karólína komin heim úr skverun
2760. Karólína ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Karólína ÞH 100 kom til Húsavíkur í dag eftir um þriggja vikna slipp á Siglufirði. Báturinn er eins og nýr á að líta en hann var sprautaður að utan sem innan auk þess sem farið var í vélina á honum. Karólína er að verða 14 ára … Halda áfram að lesa Karólína komin heim úr skverun
Jeanette komin aftur
IMO 9357509. Jeanette ex Jeannette. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Jeanette kom til Húsavíkur í gærkveldi með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið var hér í júnímánuði sl. í sömu erindagjörðum og þá var veður svipað og í dag eins og sjá má hér. Skipið var smíðað árið 2007 og bar nafnið Anet fyrstu … Halda áfram að lesa Jeanette komin aftur









