
Jón Steinar tók þessar myndir í dag af dragnótabátnum Stapafelli SH 26 þar sem hann var að veiðum við Garðskaga.
Það er Stapafell ehf. sem gerir bátinn út og er hann með heimahöfn á Arnarstapa.
Um bátinn, sem lengi hét Þorleifur EA 88, er það m.a að segja að hann hét upphaflega Hildur Stefánsdóttir ÞH 204 og var smíðaður á Seyðisfirði árið 1975.
Önnur nöfn sem báturinn hefur borið eru Tryggvi Jónsson EA 26, Kristín ÁR 101, Ásdís ST 37, Hringur GK 18 og Leifur EA 888.









Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution