Gunnbjörg frá Raufarhöfn

2623. Gunnbjörg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Björgunarskipið Gunnbjörg frá Raufarhöfn sést hér láta úr höfn á Húsavík í gærkveldi. Gunnbjörg er staðsett á Húsavík um tíma vegna bilunar í bát Björgunarsveitarinnar Garðars. Gunnbjörg var smíðuð í Englandi árið 1986 og er 40,73 BT að stærð. Með því að smella á myndina er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Gunnbjörg frá Raufarhöfn →

Örkin hans Gunna

1420. Örkin ex Keilir SI 145. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Örkin frá Siglufirði kom til Húsavíkur í kvöld en hún er á vesturleið. Báturinn er í eigu Gunnars Júlíussonar á Siglufirði og var smíðuð í Skipavík í Stykkishólmi 1975.  Örkin var smíðuð í Skipavík í Stykkishólmi 1975 og hét upphaflega Kristbjörg ÞH 44. Hún var … Halda áfram að lesa Örkin hans Gunna →

Katri GR 12-98

IMO:9905992. Katri GR 12-98. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Þessi nýi grænlenski bátur kom inn til Hafnarfjarðar síðdegis í gær en hann var afhentur á dögunum frá dönsku skipasmíðastöðinni Hvide Sande Shipyard, Steel & Service. Eftir því sem ljósmyndarinn segir þá kom báturinn hér við á leið sinni til Grænlands þar sem að setja á … Halda áfram að lesa Katri GR 12-98 →

Höfrungur III seldur til Rússlands

1902. Höfrungur III AK 250 ex Polarborg II. Ljósmynd Þór Jónsson 2020. Brim hefur selt skuttogarann Höfrung III AK 250 til Rússland og verður skipið afhent nýjum eiganda í næsta mánuði. Höfrungur III AK 250 kom til landsins í febrúar 1992 en hann hét áður Polarborg II og var keyptur notaður frá Færeyjum. Kaupandi Haraldur … Halda áfram að lesa Höfrungur III seldur til Rússlands →

Wilson Newport í kvöldsólinni

IMO 9430985. Wilson Newport. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Newport liggur nú við Bökugarðinn en verið er að skipa upp trjádrumbum fyrir PCC á Bakka. Skipið var smíðað árið 2011 og siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Walletta. Það er 123 metra langt og 17 metra breitt. Mælist 6,118 GT að stærð. Með … Halda áfram að lesa Wilson Newport í kvöldsólinni →

Hólmasól

2922. Hólmasól. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbáturinn Hólmasól frá Akureyri kemur hér úr ferð út á Eyjafjörðinn í gær en það er Akureyri Whale Watching ehf. sem gerir hann út. Smíðaður hjá Brodrene Aa Eikefjord A/S í Noregi árið 1988 en keyptur hingað til lands 2016. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Hólmasól →