IMO 9463451. Ebroborg við Bökugarðinn í morgun. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Ebroborg kom upp að Bökugarðinum í morgun eftir að hafa beðið síðan í gær eftir því að kompanískipið Lauwersborg færi frá. Ebroborg er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið 7,196 GT að stærð og var smíðað árið 2010. Lengd þess er 138 … Halda áfram að lesa Ebroborg við Bökugarðinn í morgun
Varðskipið Freyja kom til heimahafnar í dag
3011. V/S Freyja ex GH Endurance. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2021. Varðskipið Freyja kom til heimahafnar á Siglufirði í dag eftir siglingu frá Rotterdam í Hollandi þar sem skipið var afhent Landhelgisgæslunni á dögunum. Það var heldur hryssingslegt veðrið á Siglufirði, norðan rok og slydda. Haukur Sigtryggur lét það ekki stoppa sig og fór bæjarleið til … Halda áfram að lesa Varðskipið Freyja kom til heimahafnar í dag
Klara Sveinsdóttir SU 50
1638. Klara Sveinsdóttir SU 50 ex Drangavík ST 71. Ljósmynd Börkur Kjartansson. Hér gefur að líta togskipið Klöru Sveinsdóttur SU 50 við bryggju á Fáskrúðsfirði en þaðan var hún gerð út um nokkura ára skeið. Útgerð Akkur hf. á Fáskrúðsfirði. Klara Sveinsdóttir sem var 292 tonn var smíðuð í Noregi 1978 og keypt notuð til … Halda áfram að lesa Klara Sveinsdóttir SU 50
Lauwersborg kom í dag
IMO 9399387. Lauwersborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hollenska flutningaskipið Lauwersborg kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum hvar nú er verið að skipa upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka. Lauwersborg er 4,695 GT að stærð og var smíðað árið 2007. Lengd þess er 123 metrar og breiddin 14 metrar. Skipið siglir undir … Halda áfram að lesa Lauwersborg kom í dag
Glaður ÍS 221
1922. Glaður ÍS 221 ex Hafborg EA 156. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Glaður ÍS 221 kemur hér til hafnar í Hafnarfirði vorið 2009 en heimahöfn hans var í Bolungarvík. Upphaflega hét báturinn Sigmar NS 5 og var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1989. Árið 1990 fékk hann nafnið Magnús EA 25 með heimahöfn í Grímsey. … Halda áfram að lesa Glaður ÍS 221
Vingþór ÞH 166
895. Vingþór ÞH 166 ex Vingþór NS 341. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1980. Vingþór ÞH 166 liggur hér við bryggju á Siglufirði vorið 1980 en hans heimahöfn var þá á Kópaskeri. Vingþór NS 341 hét hann upphaflega og var í eigu Seyðisfjarðarkaupstaðar. Báturinn var 15 brl. að stærð, smíðaður í Danmörku árið 1934 og kom til … Halda áfram að lesa Vingþór ÞH 166
Ársæll ÁR 66
1014. Ársæll ÁR 66 ex Dúi ÍS 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Ársæll ÁR 66 kom til Húsavíkur 5. mars árið 2012 þeirra erinda að láta gera við rækjutrollið. Báturinn hét upphaflega Ársæll Sigurðsson GK 320 og var með heimahöfn í Hafnarfirði. Síðar hét hann lengi vel Arney KE 50 frá Keflavík. Því næst Auðunn … Halda áfram að lesa Ársæll ÁR 66
Glaður HU 67 á toginu
12. Glaður HU 67 ex Guðmundur Einarsson ÍS 28. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Glaður HU 67 sést hér á togi á rækjuslóðinni úti fyrir Norðurlandi, sennilega á árunum1988-1989. Hann var gerður úr frá Hvammstanga og var í eigu Meleyrar hf. sem keypti bátinn frá Ísafirði árið 1987. Upphaflega hét báturinn Árni Magnússon GK 5 og var … Halda áfram að lesa Glaður HU 67 á toginu
Báðir smíðaðir fyrir Breiðfirðinga
1424. Þórsnes II SH 109 - 260. Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Hér gefur að líta tvo báta sem smíðaðir voru á sínum tíma fyrir útgerðir við Breiðafjörð en eru hér við bryggju á Húsavík. Nánar tiltekið á Sjómannadaginn árið 2007. Sveinbjörn Jakobsson SH 10 var smíðaður Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá … Halda áfram að lesa Báðir smíðaðir fyrir Breiðfirðinga
Steinunn verður Otur III
2766. Otur III ÍS 33 ex Steinunn BA 517. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Línubáturinn Steinunn BA 517 hefur fengið nafnið Otur III ÍS 33 með heimahöfn á Þingeyri. Útgerð Siglunes hf.. Upphaflega hét báturinn Benni SF 66 og var smíðaður í Trefjum árið 2007. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Steinunn verður Otur III









