Eemshorn við Bökugarðinn

IMO 9393278. Eemshorn við Bökugarðinn í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Eemshorn kom til Húsavíkur snemma í morgun og lagðist að Bökugarðinum en skipið er með hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka.  Eemshorn er 3,990 GT að stærð og var smíðað árið 2008. Lengd þess er 111 metrar og breiddin 14 metrar. Skipið siglir undir … Halda áfram að lesa Eemshorn við Bökugarðinn →

Beitir við bryggju á Húsavík

2900. Beitir NK 123 ex Gitte Henning S 349. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér koma nokkrar myndir af nóta- og togskipinu Beiti NK 123 við bryggju á Húsavík sl. sunnudag. 2900. Beitir NK 123 ex Gitte Henning S 349. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2021. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. … Halda áfram að lesa Beitir við bryggju á Húsavík →

Beitir NK 123 kom til Húsavíkur í dag

2900. Beitir NK 123 ex Gitte Henning S 349. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Nóta- og togskipið Beitir NK 123 kom til Húsavíkur í dag og hygg ég að þetta sé stærsta fiskiskip sem lagst hefur að bryggju hér í bæ. Skipið, sem áður hét Gitte Henning S 349 og þykir með þeim glæsilegri, var smíðað í … Halda áfram að lesa Beitir NK 123 kom til Húsavíkur í dag →

Samvinna á síldarmiðunum

2882. Víkingur AK 100. Ljósmynd Hilmar Örn Kárason 2021. Með fylgjandi myndir voru teknar á síldarmiðnum og sýna Víking AK 100 og Venus NS 150 þegar það síðarnefnda var að dæla um 620 tonnum íslenskrar síldar yfir í það fyrrnefnda. Það voru Húsvíkingar sem tóku myndirnar, Hilmar Örn Kárason 1. stýrimaður á Venus tók myndina … Halda áfram að lesa Samvinna á síldarmiðunum →

Ný Cleopatra 36 til Þrándheims í Noregi

Skipson TR-10-O. Ljósmynd Trefjar 2021. Tommy Albertsen útgerðarmaður í Þrándheimi fékk á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Tommy verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem ber nafnið Skipson og er kominn til Noregs og mun hefja veiðar á næstu dögum. Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36 til Þrándheims í Noregi →

Hrafnseyri ÍS 10

1576. Hrafnseyri ÍS 10 ex Kolbeinsey ÞH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Hrafnseyri ÍS liggur hér við bryggju í Grindavík um árið en Þorbjörn-Bakki hf. keypti hana haustið 1997 frá Húsavík þar sem hún bar nafnið Kolbeinsey ÞH 10. Kolbeinsey ÞH 10 var smíðuð fyrir Höfða hf. á Húsavík í Slippstöðinni á Akureyri og kom … Halda áfram að lesa Hrafnseyri ÍS 10 →

Bjarni Ólafsson AK 70

2287. Bjarni Ólafsson AK 70 ex Voyager K. Ljósmynd Börkur Kjartansson. Bjarni Ólafsson AK 70 sem hér sést var keyptur til landsins vorið 1997 og leysti af hólmi eldra skip með sama nafni. Í 7-8 tbl. Ægis 1997 sagði m.a: Í apríl s.l. bœttist nýtt og glœsilegt nóta- og togveiðiskip, BjarniÓlafsson AK-70, í flota Akurnesinga. … Halda áfram að lesa Bjarni Ólafsson AK 70 →

Stakkavík ÁR 107

1036. Stakkavík ÁR 107 ex Stakkanes HU 121. Ljósmynd Kjartan Traustason. Stakkavík ÁR 107 er hér við bryggju í Reykjavík um árið og gæti hafa verið að landa á Faxamarkað. Stakkavík var einn 18 báta sem smíðaðir voru í Boizenburg fyrir Íslendinga á árunum 1964-1968. Báturinn hét upphaflega Guðbjörg ÍS 47 en Stakkavík var hans … Halda áfram að lesa Stakkavík ÁR 107 →