Nýr Sigurvin kom til Siglufjarðar í dag

3024. Sigurvin kemur til Siglufjarðar í dag og gamli Sigurvin fylgir í humátt á eftir. Ljósmynd Haukur Sigtryggur Valdimarsson 2023. Nýtt björgunarskip Landsbjargar, Sigurvin, kom til heimahafnar á Siglufirði í dag og tók Haukur Sigtryggur meðfylgjandi myndir við það tækifæri. Gamli Sigurvin fór til móts við þann nýja og fylgdi honum til hafnar en fjöldi fólks … Halda áfram að lesa Nýr Sigurvin kom til Siglufjarðar í dag →

Jón Freyr SH 115

102. Jón Freyr SH 115 ex Hrafn Sveinbjarnarson II GK 10. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Stykkishólmsbáturinn Jón Freyr SH 115 dregur hér netin í Breiðafirði á vetrarvertíð árið 1982. Báturinn, sem áður hét Hrafn Sveinbjarnarson II GK 10 og var smíðaður í Noregi árið 1960, var gerður út frá Stykkishólmi árin 1979-1994. Árið 1986 var … Halda áfram að lesa Jón Freyr SH 115 →

Olíuskipið Keilir við bryggju á Húsavík

IMO 9268186. Keilir við bryggju a Húsavík 5. ágúst 2003. Hér gefur að líta olíuskipið Keili við Norðurgarðinn á Húsavík þann 5. ágúst árið 2003. Skipið hafði komið nýtt til landsins fyrr á árinu en það var smíðað fyrir Olíudreifingu hf. í Kína. Skipið er 4,341 GT að stærð, lengd þess er 103 metrar og … Halda áfram að lesa Olíuskipið Keilir við bryggju á Húsavík →

Polar Amaroq á loðnumiðunum

Polar Amaroq GR 18-49 ex Gardar. Ljósmynd Sigdór Jósefsson 2023. Sigdór Jósefsson tók þessa mynd af loðnuskipinu Polar Amaroq þar sem það var að veiðum við Snæfellsnes í gær. Skipið er í eigu Polar Pelagic en Síldarvinnslan á þriðjungshlut í grænlenska útgerðarfélaginu.  Skipið hét áður Gardar og var í eigu norska útgerðarfélagsins K. Halstensen. Það var … Halda áfram að lesa Polar Amaroq á loðnumiðunum →

Sylvía komin úr slipp

1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hvalaskoðunarbáturinn Sylvía kom til Húsavíkur í dag eftir slipp á Akureyri þar sem hún var skveruð fyrir komandi hvalaskoðunarvertíð. Gentle Giants gerir Sylvíu út en hún var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri árið 1976 og hét upphaflega Sigrún ÞH 169 frá Grenivík. Með því að … Halda áfram að lesa Sylvía komin úr slipp →