1890. Katrín GK 266 ex Una GK 266. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Jón Steinar tók þessar myndii af línubátnum Katrínu GK 266 þar sem hann var að draga línuna skammt undan Hópsnesinu. Kallarnir virtust vera að fiska vel en hér má lesa nánar um bátinn sem Stakkvík ehf. gerir út. 1890. Katrín GK 266 ex Una … Halda áfram að lesa Katrín dregur línuna undan Hópsnesi
Lómur BA 257
1156. Lómur BA 257 ex Lómur SH 177. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Lómur BA 257 frá Tálknafirði hét upphaflega Arinbjörn RE 54 og var smíðaður hjá Slippstöðinni hf. á Akureyri árið 1971. Eigandi Sæfinnur hf. í Reykjavík sem átti bátinn í þrjú ár en þá var hann seldur til Vestmannaeyja þar sem hann fékk nafnið Elías … Halda áfram að lesa Lómur BA 257
Á loðnumiðunum í morgun
Á loðnumiðunum í morgun. Ljósmynd Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson 2023. Þorsteinn Eyfjörð skipverji á Hákoni EA 148 sendi síðunni þessa mynd sem hann tók fyrir stundu á loðnumiðunum í Breiðafirði. Þar er Hákon, sem er í sinni síðustu veiðiferð á þessari loðnuvertíð, að dæla úr mjög góðu kasti. Þarna má sjá Jón Kartansson SU 111 og … Halda áfram að lesa Á loðnumiðunum í morgun
Ásþór RE 10
1566. Ásþór RE 10 ex Lofottrål III. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Ásþór RE 10 kemur hér til hafnar í Reykjavík um árið en það var Ísbjörninn hf. sem keypti hann til landsins árið 1981. Ásþór, sem var 297 brl. að stærð, hét áður Lofottrål III og var smíðaður árið 1970 hjá A/S Storviks Mek. Verksted … Halda áfram að lesa Ásþór RE 10
Gnýfari SH 8
1463. Gnýfari SH 8 ex Sæunn BA 13. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1987. Gnýfari SH 8 frá Grundarfirði er hér að draga netin á Breiðafirði á vetrarvertíð en þaðan var hann gerður út árin 1987-1988. Báturinn hét upphaflega Háborg NK 77 frá Neskaupstað. Hann var smíðaður 1976 hjá Trésmiðju Austurlands h/f á Fáskrúðsfirði og afhentur árið … Halda áfram að lesa Gnýfari SH 8
Halldór á flot
2790. Halldór NS 302 ex Áki í Brekku SU 760. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Þá fer grásleppuvertíðin að hefjast og í gær var Halldór NS 302 sjósettur á Húsavík en þar hefur báturinn staðið uppi frá því í haust. Það er GPG Seafood sem á og gerir bátinn út sem hefur heimahöfn á Bakkafirði. Með … Halda áfram að lesa Halldór á flot
Sighvatur Bjarnason VE 81
1742. Sighvatur Bjarnason VE 81 ex Kap VE 4. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2023. Tryggvi Sigurðsson tók þessa mynd í dag þegar loðnuskipið Sighvatur Bjarnason VE 81 kom til hafnar í Vestmannaeyjum. Báturinn hét áður Kap VE 4 en fékk þetta nafn s. haust. Það er Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum sem á skipið og gerir út. Skipið … Halda áfram að lesa Sighvatur Bjarnason VE 81
Dagfari kominn í flotann á ný
1470. Dagfari ex Salka - 1417. Bjössi Sör ex Breiðdælingur SU. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Dagfari er gamalt og þekkt nafn í húsvíska flotanum og nú hefur nafnið verið tekið upp á ný. Þegar Norðursigling ehf. keypti Sölkusiglingar ehf. voru m.a í þeim pakka eikarbátarnir Fanney og Salka sem upphaflega hét Hafsúlan RE 77. Salka … Halda áfram að lesa Dagfari kominn í flotann á ný
Sökk í Hafnarfjarðarhöfn
1175. Erna ex Donna SU 55. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Eikarbáturinn Erna sökk í Hafnarfjarðarhöfn á dögunum en þar hefur báturinn lengi legið þar sem verið er að gera hann upp. Báturinn, sem skráður er sem skemmtiskip er 25 brl. að stærð. Upphaflega hét hann Hafsúlan RE 77 og var smíðaður árið 1971 hjá Trésmiðju … Halda áfram að lesa Sökk í Hafnarfjarðarhöfn
Náttfari
993. Náttfari kemur úr hvalaskoðun í gær. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Í gær birtist hér á síðunni mynd af Náttfara láta úr höfn á Húsavík með ferðamenn í hvalaskoðun á Skjálfanda. Og nú birtist mynd af bátnum koma að landi úr þessari sömu ferð. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Náttfari









