1352. Lundey ÞH 350 ex Svala NK 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Lundey ÞH 350 kemur hér til hafnar á Húsavík en hún var gerð út af Kristbirni Árnasyni, Bóba, skipstjóra á Sigurði. Sigurður Konráðsson á Siglufirði smíðaði bátinn árið 1974 og nefndi Kóp SI 7. Hann var 6 brl. að stærð búinn 68 hestafla Listervél. … Halda áfram að lesa Lundey ÞH 350
Flokkur: Smábátar
Sigrún AK 71 – Faxaberg HF 104
1780. Sigrún AK 71 ex Faxaberg HF 104. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Sigrún AK 71 var smíðuð í skipasmíðastöðinni Stálvík í Garðabæ fyrir Geir Sigurjónsson í Hafnarfirði og hét báturinn upphaflega Björg HF 76. Sigrún AK 71 var seld til Noregs árið 2007 en hafði á þessum 20 árum borið nöfnin Björg HF 76, Guðrún … Halda áfram að lesa Sigrún AK 71 – Faxaberg HF 104
Hrói, Maggi, Gosi, Orri og kirkjan
Trillur í Húsavíkurhöfn um 1990. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd var tekin við Húsavíkurhöfn um 1990 og sýnir kirkjuna okkar með smáabáta í forgrunni. Innstur er Hrói ÞH 29, í eigu Guðmundar Baldurssonar, þá Maggi ÞH 68, í eigu Þorgeirs Þorvaldssonar, því næst Gosi ÞH 9, í eigu Birgirs Lúðvíkssonar og ystur er Orri ÞH … Halda áfram að lesa Hrói, Maggi, Gosi, Orri og kirkjan
Friðgeir Björgvinsson RE 400
1851. Friðgeir Björgvinsson RE 400. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Friðgeir Björgvinsson RE 400 var smíðaður hjá Stálvík í Garðabæ og hafði smíðanúmer 35 hjá stöðinni. Báturinn, sem smíðaður var fyrir Helga Friðgeirsson í Reykjavík, var afhnetur frá skipasmíðastöðinni 18. desember 1987. Hann var sérstaklega útbúinn til línuveiða með Mustad línuvélasamstæðu eins og segir í 10. tbl. … Halda áfram að lesa Friðgeir Björgvinsson RE 400
Maí TH 194
Maí TH 194. Mynd úr safni Helga Árnasonar. Maí TH 194 var smíðaður á Akureyri 1955, af Nóa bátasmið, og var 8 brl. að stærð búinn 44 hestafla Kelvin díselvél. Eigendur frá 10. júlí 1956 voru Pálmi Héðinsson, Sigtryggur Brynjólfsson, Helgi Árnason, Kristján St. Jónsson og Halldór Þorvaldsson. Báturinn fórst á Axarfirði 21. október 1959 … Halda áfram að lesa Maí TH 194
Norðureyri ehf. kaupir Von GK 113
2733. Von GK 113. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016. Norðureyri ehf. á Suðureyri hefur fest kaup á línubátnum Von GK 113 af Útgerðarfélagi Sandgerðis ehf. og mun hann koma í stað Einars Guðnasonar ÍS 303 sem strandaði á dögunum. bb.is greinir frá þessu og þar segir að báturinn sé 15 tonna krókaaflamarksbátur smíðaður árið 2008 og … Halda áfram að lesa Norðureyri ehf. kaupir Von GK 113
Særif SH 25 mun veiða fyrir Íslandssögu
2822. Særif SH 25 ex Hálfdán Einarsson ÍS 128. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Íslandssaga ehf. á Suðureyri hefur náð samningum við fyrirtækið Melnes ehf. á Rifi og mun bátur síðarnefnda fyrirtækisins veiða fyrir Íslandssögu næsta mánuðinn. Það er bb.is á Ísafirði sem greinir frá þessu og þar segir m.a: það er Særif SH 25 30 tonna … Halda áfram að lesa Særif SH 25 mun veiða fyrir Íslandssögu
Nanna Ósk II ÞH 133 – Myndasyrpa
2793. Nanna Ósk II ÞH 133. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Eins og áður hefur komið fram á síðunni kom ný Nanna Ósk II ÞH 133 til heimahafnar á Raufarhöfn þann 5. nóvember árið 2010. Þessar myndir voru teknar daginn eftir, sama dag og ný Hófaskarðsleið var formlega vígð ef einhver skyldi hafa á huga á … Halda áfram að lesa Nanna Ósk II ÞH 133 – Myndasyrpa
Einar Guðnason ÍS 303 á strandstað við Gölt
2907. Einar Guðnason ÍS á strandstað við Gölt. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 14. nóvember 2019. Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður á v/s Tý tók þessar myndir af Einari Guðnasyni ÍS 303 á strandstað við Gölt í mynni Súgandafjarðar. Einar Guðnason ÍS 303 var að koma úr línuróðri skömmu fyrir miðnætti í 13. nóvember þegar strandið varð. … Halda áfram að lesa Einar Guðnason ÍS 303 á strandstað við Gölt
Indriði Kristins BA 751
2907. Indriði Kristins BA 751. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Indriði Kristins BA 751 sem hér sést koma til hafnar í Grindavík vorið 2016 fékk síðar nafnið Einar Guðnason ÍS 303 og var gerður út frá Suðureyri. Sú útgerð hlaut snöggan endi nú í vikunni þegar báturinn strandaði og ónýttist við Gölt í mynni Súgandafjarðar. Þyrla … Halda áfram að lesa Indriði Kristins BA 751









