Happasæll KE 94

2660. Happasæll KE 94. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Happasæll KE 94 sést hér koma að landi í Keflavík á vetrarvertíðinni árið 2006. Þegar Happasæll KE 94 var sjósettur í desembermánuði árið 2004 kom eftirfarandi frétt í Morgunblaðinu: Stærsti plastbátur landsins var sjósettur frá Grandagarði um helgina, þegar Happasæll KE-94, var sjósettur. Hann er um 30 … Halda áfram að lesa Happasæll KE 94

Indriði Kristins að draga línuna

2947. Indriði Kristins BA 751. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2019. Á þessum myndum Guðmundar St. Valdimarssonar frá því í gær er Indriði Kristins BA 751 að draga línuna NV. af Látrabjargi. Þann 16. nóvember 2018 skrifaði ég eftirfarandi inn á gömlu síðuna: Útgerðarfélagið Þórsberg ehf á Tálknafirði fékk á dögunum afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 46B … Halda áfram að lesa Indriði Kristins að draga línuna

Ársæll EA 74 á grásleppuveiðum á Skjálfandaflóa

403. Ársæll EA 74 ex Farsæll EA 74. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Á þessari mynd er Ársæll EA 74 við grásleppuveiðar á Skjálfandaflóa á fyrri hluta níunda áratugar síðustu aldar. Ársæll EA 74 var í eigu Jóhannesar Jónssonar frá Flatey, búsettur á Akureyri. Hann keypti bátinn árið 1976 frá Hrísey. Jóhannes átti bátinn til ársins 1991 … Halda áfram að lesa Ársæll EA 74 á grásleppuveiðum á Skjálfandaflóa

Herja ST 166

2806. Herja ST 166. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þegar ég átti leið um Hólmavík um miðjan ágúst í fyrra var Herja ST 166 að makrílveiðum við hafnarkjaftinn og að sjálfsögðu var myndavélin tekin upp.  Herja ST 166 var smíðuð hjá bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirðir árið 2011 og er af gerðinni Cleopatra 31. Eigandi er útgerðarfélagið … Halda áfram að lesa Herja ST 166

Kristján HF 100 kemur til Grindavíkur

2961. Kristján HF 100. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Línubáturinn Kristján HF 100 kom til Grindavíkur í fyrsta skipti í gærkveldi og að sjálfsögðu lá Jón Steinar fyrir honum. Útgerðarfélagið Kambur ehf. fékk Kristján HF 100 afhentan frá Trefjum í fyrrasumar. Hann hefur fiskað vel síðan veiðar hófust og landað hér og þar en eins og … Halda áfram að lesa Kristján HF 100 kemur til Grindavíkur

Glettingur NS 100

2666. Glettingur NS 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Glettingur NS 100 er á þessari mynd,sem tekin var 4. maí árið 2005 á útleið frá Húsavík. Báturinn kom við á heimsiglingu sinni frá Reykjavík til heimahafnar á Borgarfirði eystri. Morgunblaðið sagði m.a svo frá 28. apríl 2005: BÁTASMIÐJAN Seigla hefur afhent nýjan bát til Borgarfjarðar eystra. … Halda áfram að lesa Glettingur NS 100