Sæþór EA 101

1291. Sæþór EA 101 ex Votaberg SU 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Sæþór EA 101 hét upphaflega Jón Helgason ÁR 12 og var smíðaður í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði árið 1973. Jón Helgason ÁR 12 var 120 brl. að stærð smíðaður fyrir Fræg hf. í Þorlákshöfn. Báturinn var 120 brl. að stærð búinn … Halda áfram að lesa Sæþór EA 101 →

Jóhanna Magnúsdóttir RE 70

708. Jóhanna Magnúsdóttir RE 70 ex Gustur SH 143. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jóhanna Magnúsdóttir RE 70 kemur hér til hafnar í Reykjavík um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Upphaflega hét báturinn Pétur Sigurðsson RE 331 og var smíðaður í Landssmiðjunni í Reyjavík árið 1956. Hann var smíðaður fyrir Sigurð Pétursson í Djúpuvík á Ströndum. Báturinn, … Halda áfram að lesa Jóhanna Magnúsdóttir RE 70 →

Þórsnes II SH 109

1424. Þórsnes II SH 109. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Þórsnes II SH 109, sem hér að ofan sést draga netin á Breiðafirði, var smíðað fyrir samnefnt fyrirtæki í Stykkishólmi árið 1975. Þórsnes II SH 109 var eitt þeirra raðsmíðaskipa sem Slippstöðin á Akureyri smíðaði og voru af­hent eigendum sínum á árunum 1971 til 1975. Stærð þessara … Halda áfram að lesa Þórsnes II SH 109 →

Gulltoppur ÁR 321

874. Gulltoppur ÁR 321 ex Gulltoppur GK 321. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Gulltoppur ÁR 321 kemur hér að landi í Þorlákshöfn á vetrarvertíðinni árið 1982 en upphaflega hét hann Ver NK 19. Nói Kristjánsson bátasmiður á Akureyri smíðaði bátinn árið 1962 fyrir Guðmund Bjarnason og Freystein Þórarinsson í Neskaupstað. Hann var 10 brl. að stærð búinn … Halda áfram að lesa Gulltoppur ÁR 321 →

Jói á Nesi SH 159

472. Jói á Nesi SH 159 ex Stefán Kristjánsson SH 184. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Jói á Nesi SH 159 var smíðaður árið 1946 í Skipasmíðastöð Hafnarfjarðar hf. og hét upphaflega Guðbjörg GK 6. Guðbjörg GK 6 var 58 brl. að stærð og smíðuð fyrir Hlutafélagið Björg í Hafnarfirði. Að því félagi stóðu Bæjarútgerð Hafnafjarðar, Bátafélag … Halda áfram að lesa Jói á Nesi SH 159 →

Húsavíkurhöfn á aðfangadegi jóla

Húsavík á aðfangadegi jóla. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hér koma nokkrar myndir sem teknar voru við Húsavíkurhöfn á aðfangadegi jóla þetta árið. Við Húsavíkurhöfn á aðfangadegi jóla 2019. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn á aðfangadegi jóla →

Bárður kom til heimahafnar í dag

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Alfons Finnsson 2019. Bárður SH 81 kom til heimahafnar í Ólafsvík í dag og tók Fonsi þessa mynd af honum við það tækifæri. Bárður SH 81 kom til landsins 30. nóvember sl. en þá lagðist hann að bryggju í Hafnarfirði þar sem m.a var sett í bátinn netaspil og krapakerfi. … Halda áfram að lesa Bárður kom til heimahafnar í dag →

Skálaberg á siglingu á Skjálfanda

923. Skálaberg ÞH 244 ex Sigurður Þorkelsson ÍS 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Skálaberg ÞH 244 er hér á siglingu á Skjálfanda sumarið 1987 en báturinn var gerður út frá Húsavík árin 1985-1990. Báturinn var smíðaður árið 1957 í Danmörku fyrir Sigvalda Þorleifsson h/f í Ólafsfirði og hét Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36. Báturinn var endurbyggður … Halda áfram að lesa Skálaberg á siglingu á Skjálfanda →