708. Jóhanna Magnúsdóttir RE 70 ex Gustur SH 143. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jóhanna Magnúsdóttir RE 70 kemur hér til hafnar í Reykjavík um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Upphaflega hét báturinn Pétur Sigurðsson RE 331 og var smíðaður í Landssmiðjunni í Reyjavík árið 1956. Hann var smíðaður fyrir Sigurð Pétursson í Djúpuvík á Ströndum. Báturinn, … Halda áfram að lesa Jóhanna Magnúsdóttir RE 70
Flokkur: Bátar
Þórsnes II SH 109
1424. Þórsnes II SH 109. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Þórsnes II SH 109, sem hér að ofan sést draga netin á Breiðafirði, var smíðað fyrir samnefnt fyrirtæki í Stykkishólmi árið 1975. Þórsnes II SH 109 var eitt þeirra raðsmíðaskipa sem Slippstöðin á Akureyri smíðaði og voru afhent eigendum sínum á árunum 1971 til 1975. Stærð þessara … Halda áfram að lesa Þórsnes II SH 109
Gulltoppur ÁR 321
874. Gulltoppur ÁR 321 ex Gulltoppur GK 321. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Gulltoppur ÁR 321 kemur hér að landi í Þorlákshöfn á vetrarvertíðinni árið 1982 en upphaflega hét hann Ver NK 19. Nói Kristjánsson bátasmiður á Akureyri smíðaði bátinn árið 1962 fyrir Guðmund Bjarnason og Freystein Þórarinsson í Neskaupstað. Hann var 10 brl. að stærð búinn … Halda áfram að lesa Gulltoppur ÁR 321
Jói á Nesi SH 159
472. Jói á Nesi SH 159 ex Stefán Kristjánsson SH 184. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Jói á Nesi SH 159 var smíðaður árið 1946 í Skipasmíðastöð Hafnarfjarðar hf. og hét upphaflega Guðbjörg GK 6. Guðbjörg GK 6 var 58 brl. að stærð og smíðuð fyrir Hlutafélagið Björg í Hafnarfirði. Að því félagi stóðu Bæjarútgerð Hafnafjarðar, Bátafélag … Halda áfram að lesa Jói á Nesi SH 159
Húsavíkurhöfn á aðfangadegi jóla
Húsavík á aðfangadegi jóla. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hér koma nokkrar myndir sem teknar voru við Húsavíkurhöfn á aðfangadegi jóla þetta árið. Við Húsavíkurhöfn á aðfangadegi jóla 2019. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn á aðfangadegi jóla
Bárður kom til heimahafnar í dag
2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Alfons Finnsson 2019. Bárður SH 81 kom til heimahafnar í Ólafsvík í dag og tók Fonsi þessa mynd af honum við það tækifæri. Bárður SH 81 kom til landsins 30. nóvember sl. en þá lagðist hann að bryggju í Hafnarfirði þar sem m.a var sett í bátinn netaspil og krapakerfi. … Halda áfram að lesa Bárður kom til heimahafnar í dag
Skálaberg á siglingu á Skjálfanda
923. Skálaberg ÞH 244 ex Sigurður Þorkelsson ÍS 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Skálaberg ÞH 244 er hér á siglingu á Skjálfanda sumarið 1987 en báturinn var gerður út frá Húsavík árin 1985-1990. Báturinn var smíðaður árið 1957 í Danmörku fyrir Sigvalda Þorleifsson h/f í Ólafsfirði og hét Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36. Báturinn var endurbyggður … Halda áfram að lesa Skálaberg á siglingu á Skjálfanda
Núpur ÞH 3
1591. Núpur ÞH 3 ex Núpur BA 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Núpur ÞH 3 siglir hér inn með slippkantinum á Akureyri um árið. Dalborg, Hegranes og Nökkvi í bakgrunni. Núpur ÞH 3 var í eigu Kaldbaks hf. á Grenivík um nokkurra ára skeið á níunda áratugnum var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Szczecinska Stocznic Remontowa í Póllandi … Halda áfram að lesa Núpur ÞH 3
Reynir GK 177
1105. Reynir GK 177 ex Reynir Ak 18. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Þessar myndir sýna síðustu siglingu Reynis GK 177 sem var frá Suðurgarðinum í Húsavíkurhöfn að dráttarbrautinni þar sem hann var tekinn í slipp. Reynir GK 177 hét upphaflega Jón Helgason ÁR 12 og var 50 brl. að stærð. Hann var smíðaður fyrir Fræg … Halda áfram að lesa Reynir GK 177
Helga II RE 373
1018. Helga II RE 373. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Helga II RE 373 er hér á toginu á rækjunni árið 1987 en þegar þarna var komið í sögu hennar var stutt í þá nýju sem smíðuð var í Ulsteinvik í Noregi. Hún kom ári síðar og tók skipasmíðastöðin, Ulstein Hatlö A/S, þessa upp í og … Halda áfram að lesa Helga II RE 373









