2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Þessar myndir tók ég í dag þegar Hafborg EA 152 frá Grímsey kom til hafnar á Húsavík. Báturinn hefur verið við dragnótaveiðar á Skjálfanda að undanförnu en hann er útbúinn til neta- og dragnótaveiða. 2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hafborg EA 152 er 284 … Halda áfram að lesa Hafborg EA 152
Flokkur: Bátar
Ver ÍS 120
873.Ver ÍS 120 ex Ver AK 97. Ljósmynd Pálmi Jóhannesson 1970. Þessa mynd tók Pálmi Jóhannesson sumarið 1970 og sýnir hún vélbátinn Ver ÍS 120 frá Ísafirði. Pálmi var skipverji á Sif ÍS 500 sem stundaði handfæraveiðar þetta sumar og þegar þeir voru að veiðum á Breiðafirði barst kall frá Ver ÍS 120 þar sem … Halda áfram að lesa Ver ÍS 120
Sigþór ÞH 100
185. Sigþór ÞH 100 ex Sigurpáll GK 375. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Höddi vinur minn á afmæli í dag og því upplagt að birta mynd af Sigþóri ÞH 100 hvar hann var lengi í skipsrúmi og að lokum í brúnni. Sigþór ÞH 100 hét upphaflega Sigurpáll GK 375 og var smíði no.46. frá Marstrands Mekaniska Verkstad … Halda áfram að lesa Sigþór ÞH 100
Þórir SF 77 kemur að landi á Hornafirði
2731. Þórir SF 77. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2019. Þórir SF 77 kemur hér að landi í sinni heimahöfn, Hornafirði en hann stundar nú veiðar með fiskitrolli. Þórir SF 77 og systurskipið Skinney SF 30 voru smíðuð hjá Ching Fu Shipbuilding co.,LTD skipasmíðastöðinni í Taiwan árið 2008 fyrir Skinney-Þinganes hf. á Höfn í Hornafirði. Skipin fóru … Halda áfram að lesa Þórir SF 77 kemur að landi á Hornafirði
Kristbjörg ÞH 44
1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Aldrei of margar myndir af Kibbunni, smíðuð í Skipavík fyrir Korra hf. á Húsavík árið 1975. Þarna var farið að vora og menn enn á netum. Pabbi í brúnni, Már Höskuldsson og Jón Skúli Sigurgeirsson klárir fram á. Bræðurnir Magnús og Völundur úr Sólbrekkunni voru í áhöfn líka … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44
Júlía VE 123 á rækjuveiðum
623. Júlía VE 123 ex Skálafell RE 20. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Júlía VE 123 er hér að rækjuveiðum á Öxarfirði um miðjan níunda áratug síðustu aldar en báturinn var þá gerður út frá Kópaskeri. Grímnir hf. á Kópaskeri keypti bátinn frá Vestmannaeyjum 1983-1984 og gerði út um tíma. Hann var talinn ónýtur og tekinn af … Halda áfram að lesa Júlía VE 123 á rækjuveiðum
Smáey VE 444 hélt til veiða í morgun
2444. Smáey VE 444 ex Vestmannaey VE 444. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Togskipið Smáey VE 444 hélt til veiða frá Vestmannaeyjum í morgun og tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir við það tækifæri. Smáey VE 444 hét áður Vestmannaey VE 444 en fékk núverandi nafn fyrr á þessu ári þegar ný Vestmannaey VE 54 kom í … Halda áfram að lesa Smáey VE 444 hélt til veiða í morgun
Sigurfari ÓF 30
1916. Sigurfari ÓF 30 ex Stafnes KE 130. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurfari ÓF 30 frá Ólafsfirði liggur hér við slippkantinn á Akureyri um árið en upphaflega hét skipið Stafnes KE 130. Útgerðir bátanna höfðu makaskipti á þeim haustið 1991 og kom Sigurfari ÓF 30 til heimahafnar 15. október það ár. Hann var í eigu Sædísar … Halda áfram að lesa Sigurfari ÓF 30
Rúna RE 150
1262. Rúna RE 150 es Ásgeir Torfason ÍS 96. Rúna RE 150 kemur hér að landi í Reykjavík um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Rúna RE 150 hét upphaflega Sjöfn ÞH 142 og var smíðuð 1972 fyrir Sjöfn s/f á Grenivík af Bátasmiðjunni Vör h/f á Akureyri. Sjöfn ÞH 142 var 26.40 brl. að stærð, … Halda áfram að lesa Rúna RE 150
Áskell ÞH 48 – Drónamynir frá Jóni Steinari
2958. Áskell ÞH 48. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar myndir sem nú birtast á drónann sinn þegar nýi Áskell ÞH 48 kom til hafnar í Grindavík nú undir kvöld. 2958. Áskell ÞH 48. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Þrátt fyrir að birtu hafi verið tekið að bregða eru myndirnar hjá honum góðar að … Halda áfram að lesa Áskell ÞH 48 – Drónamynir frá Jóni Steinari









