
Farþegaskipið Silver Whisper hefur legið við ankeri hér út af Húsavíkur síðan í morgun og fyrst um sinn sást nú lítið til þess vegna þoku.
Þokulúðus skipsins var þeyttur reglulega enda léttabátar þess að flytja farþega til lands og aftur út í skip.
En það létti nú til þegar leið á daginn.
Silver Whisper er 28,258 GT að stærð, lengd þess er 186 metrar og breiddin 25 metrar.
Skipið, sem smíðað var 1999, siglir undir fána Bahamas með heimahöfn í Nassau.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution