Jóhanna Gísladóttir í Reykjanesröstinni

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Þegar Jóhanna Gísladóttir GK 357 var á siglingu til nýrrar heimahafnar í vikunni lá Jón Steinar fyrir henni og sendi drónann út þegar hún var að sigla í gegnum Reykjanesröstina. Og að sjálfsögðu var tekin hringur fyrir kappann og hér sjáum … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir í Reykjanesröstinni

Ný Jóhanna Gísladóttir kom til heimahafnar í dag

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Nýtt skip bættist í flota Vísis hf. síðdegis í dag þegar skuttogarinn Jóhanna Gísladóttir GK 357 kom til heimahafnar í Grindavík. Vísir keypti togarann frá Vestmannaeyjum í sumar þar sem hann bar nafnið Bergur VE 44. Togarinn, sem hét upphaflega Westro, … Halda áfram að lesa Ný Jóhanna Gísladóttir kom til heimahafnar í dag

Þórir í Reykjavíkurhöfn

91. Þórir SF 77 ex Helga RE 49. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þórir frá Hornafirði er hér í Reykjavíkurhöfn um árið, annað hvort að fara upp í slipp eða koma niður. Þinganes ehf. keypti Þóri SF 77 af Ingimundi h.f í Reykjavík en hann hét Helga RE 49 og var mikið aflaskip.  Þórir var smíðaður í … Halda áfram að lesa Þórir í Reykjavíkurhöfn

Garpur SI 26

6158. Garpur SI 26 ex Garpur HU 58. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Handfærabáturinn Garpur SI 26 kemur hér til hafnar á Siglufirði síðastliðnum ágústmánuði. Garpur er gerður út af Guðbrandi J. Ólafssyni en báturinn var keyptur til Siglufjarðar haustið 2018. Hann var smíðaður árið 1980 og hét Kristín BA og var með heimahöfn á Reykhólum. … Halda áfram að lesa Garpur SI 26

Arnþór í skverun um árið

189. Arnþór EA 16 ex Valdimar Sveinsson VE 22. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Arnþór EA 16 er þarna í skverun um árið í Slippstöðinni á Akureyri. Sandblásinn og síðan fengið bláa litinn. Liggur utan á Heimaey VE 1. Arnþór EA 16 hét upphaflega Skarðsvík SH 205 og var smíðaður fyrir Skarðsvík hf. á Hellissandi í Austur-Þýskalandi … Halda áfram að lesa Arnþór í skverun um árið

Wilson Nice kom með trjáboli

IMO 9430959. Wilson Nice. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Nice liggur nú við Bökugarðinn á Húsavík  þar sem uppskipun á trjáboli fyrir PCC á Bakka fer fram. Wilson Nice er 123 metra langt og 17 metra breitt, smíðað árið 2010. Það mælist 6,118 GT að stærð. Skipið, sem siglir undir fána Möltu og með heimahöfn … Halda áfram að lesa Wilson Nice kom með trjáboli

Eyrún EA 155

1094. Eyrún EA 155 ex Frosti II ÞH 220. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eyrún EA 155, sem hér kemur til hafnar í Þorlákshöfn, var gerð út frá Hrísey á fyrrihluta tíunda áratugs síðustu aldar. Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. Hafnarfirði og lauk smíði hans árið 1969 en þá voru sjö ár síðan smíðin hófst. … Halda áfram að lesa Eyrún EA 155