1475. Sæborg og 993. Náttfari í Húsavíkurslipp. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessi mynd sem tekin var nú undir kvöld sýnir tvo hvalaskoðunarbáta Norðursiglingar ljósum prýdda í Húsavíkurslipp. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution
Author: Hafþór Hreiðarsson
Landað í kvöldblíðunni
2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Kallarnir á Háey I ÞH 295 komu nú undir kvöld að landi á Húsavík með góðan afla. Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar löndun var langt komin en það er GPG Seafood ehf. sem á og gerir þennan nýjasta línubát flotans út. 2995. Háey I ÞH 295 … Halda áfram að lesa Landað í kvöldblíðunni
Ásdís
2783. Ásdís ÞH 136 ex Ingunn Sveinsdóttir AK 91. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Ásdís ÞH 136 fallegar prýdd jólaljósum í stillunni í Húsavíkurhöfn síðdegis í dag. Ásdís ÞH 136, sem er í eigu Barms ehf., hét upphaflega Kristján ÍS 110 en þegar báturinn var keyptur til Húsavíkur árið 2015 hét hann Ingunn Sveinsdóttir AK 91. … Halda áfram að lesa Ásdís
Sjöstjarnan VE 92
601. Sjöstjarnan VE 92 ex Dröfn RE 135. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sjöstjarnan VE 92 hét upphaflega Ingiber Ólafsson GK 35 og var báturinn smíðaður árið 1961 í Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði. Báturinn sem var 83 brl. að stærð var smíðaður fyrir Jón og Óskar Ingiberssyni í Keflavík og bar hann nafn föður þeirra. … Halda áfram að lesa Sjöstjarnan VE 92
Skinney-Þinganes hefur samið um smíði á nýju uppsjávarskipi
Skinney-Þinganes hefur samið um smíði á nýju uppsjávarskipi við skipasmíðafyrirtækið Karstensens Skibsværft A/S í Skagen, Danmörku. Lengd skipsins verður 75,40 metrar, breiddin 16,50 metrar. Skipið er hannað til að djúpristan sé sem minnst eða um 6,50 metrar. Lestarrými skipsins verður um 2400 rúmetrar. Áætluð afhending skipsins er í apríl 2024.
Háey I við bryggju á Húsavík
2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Háey I ÞH 295 við bryggju á Húsavík skömmu áður en báturinn hélt í róður í dag. Í bakgrunnni eru höfuðstöðvar GPG Seafood ehf. sem á og gerir Háey I út. 2995. Háey I ÞH 295. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2021. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Háey I við bryggju á Húsavík
Háey I ÞH 295
2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Háey I ÞH 295, nýr línubátur GPG Seafood ehf., kom í fyrsta skipti til löndunar á Húsavík í dag og var aflinn 15-16 tonn. Báturinn, sem er 30 BT að stærð, var smíðaður hjá Víkingbátum á Esjumelum og er af nýrri gerð báta frá þeim. Háey … Halda áfram að lesa Háey I ÞH 295
Þórsnes SH 109
967. Þórsnes SH 109 ex Marta Ágústsdóttir GK 14. Ljósmynd Vigfús Markússon. Á þessari mynd úr safni Vigfúsar Markússonar gefur að líta Þórsnes SH 109 draga netin. Upphaflega hét Þórsnesið Keflvíkingur KE 100 og var smíðað árið 1964 í Boizenburg í A-Þýskalandi. Þórsnes fór í brotajárn árið 2017, nánar tiltekið til Ghent í Belgíu. Með því að … Halda áfram að lesa Þórsnes SH 109
Iða jólaljósum prýdd
1432. Iða ÞH 321 ex Von ÞH 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér gefur að líta Iðu ÞH 321 prýdda jólaljósum í Húsavíkurhöfn. Iða hét áður Von ÞH 54 og var smíðuð í Neskaupstað árið 1975. Báturinn er 6 brl. að stærð og hét upphaflega Þórey NK 13. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Iða jólaljósum prýdd
Bárður SH 81
2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Það eru aldrei of margar myndir af aflaskipinu Bárði SH 81 og hér koma nokkrar sem teknar voru 19.ágúst sl. þegar báturinn kom að landi á Húsavík. Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. en að því fyrirtæki stendur Pétur Pétursson skipstjóri og útgerðarmaður … Halda áfram að lesa Bárður SH 81









