1487. Ásbjörg ST 9. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ásbjörg ST 9 var síðasti eikarbáturinn af þessari stærð sem Skipavík í Stykkilshólmi smíðaði. Hún var afhent árið 1977 og átti heimahöfn á Hólmavík. Í 15. tbl. Ægis 1977 sagði m.a: 1. júlí sl. afhenti Skipasmíðastöðin Skipavík h.f. í Stykkishólmi nýtt 47 rúmlesta eikarfiskiskip, sem er nýsmíði nr. … Halda áfram að lesa Ásbjörg ST 9
Author: Hafþór Hreiðarsson
Doggerbank á Skjálfanda
IMO 9341768. Doggersbank ex Jaguar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Doggersbank siglir hér út Skjálfandaflóa í gær eftir að hafa losað hráefnisfarm til PCC á Bakka. Það birtist kvöldmynd af skipinu við Bökugarðinn hér á síðunni í fyrradag og með henni þessar upplýsingar: Doggerbanks siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. Skipið er er … Halda áfram að lesa Doggerbank á Skjálfanda
Auðbjörg HU 6
656. Auðbjörg HU 6 ex Hinrik HU 8. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Auðbjörg HU 6 liggur hér við bryggju á Skagaströnd um árið en þaðan var báturinn gerður út um áratuga skeið. Ítarlega er sagt frá bátnum á vefnum aba.is en hann var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1960. Hann var 23 brl. að stærð … Halda áfram að lesa Auðbjörg HU 6
Ginneton kom til Eyja í dag
IMO 9350628. Ginneton GG 203 ex Ceton. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2021. Nýtt uppsjávarskip í flota Ísfélags Vestmannaeyja, Ginneton GG 203, kom til Vestmannaeyja um hádegisbil í dag Á Fésbókarsíðu Ísfélagsins segir að strax verði hafist handa við að læra á skipið og skrá það í íslenska skipaskrá. Skipið fær nafnið Suðurey VE 11 með skipaskrárnúmer … Halda áfram að lesa Ginneton kom til Eyja í dag
Doggersbank við Bökugarðinn
IMO 9341768. Doggersbank ex Jaguar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hollenska flutningaskipið Doggersbank kom til Húsavíkur á áttunda tímanum í morgun og lagðist að Bökugarðinum. Þar er nú verið að skipa upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka en myndin af skipinu var tekin síðdegis í dag. Doggerbanks siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. … Halda áfram að lesa Doggersbank við Bökugarðinn
Gunnar SU 139
73. Gunnar SU 139. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Gunnar SU 139 var einn tappatogaranna sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga í A-Þýskalandi á árunum 1958-1959, nánar tiltekið í Stralsund. Í Tímanum 14. júní 1959 sagði svo frá komu Gunnars SU 139: Snemma í morgun lagðist vélskipið "Gunnar" SU-139 að bryggju á Reyðarfirði. Var skipið allt fánum … Halda áfram að lesa Gunnar SU 139
Jóhanna ÁR 206
1043. Jóhanna ÁR 206 ex Akurey SF 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Jóhanna ÁR 206 kemur hér að landi í Þorlákshöfn á vetrarvertíðinni árið 2005. Jóhanna ÁR 206, sem fór í brotajárn árið 2019, hét upphaflega Hafdís SU 24 og var með heimahöfn á Breiðdalsvík. Hún var smíðuð árið 1967 fyrir Braga hf. á Breiðdalsvík … Halda áfram að lesa Jóhanna ÁR 206
Dagfari GK 70
1037. Dagfari GK 70 ex Dagfari ÞH 70. Ljósmynd Baldur Sigurgeirsson. Dagfari GK 70 er hér á loðnumiðunum um árið en myndina tók Baldur Sigurgeirsson vélstjóri. Dagfari var smíðaður fyrir Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi. Hann kom til heimahafnar á Húsavík 17, maí árið 1967. Árið 1977 er skráður eigandi Útgerðarfélagið Njörður … Halda áfram að lesa Dagfari GK 70
Haförn HU 4
1890. Haförn HU 4 ex Bjarni Helgason HU 109. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er verið að dytta að Haferni HU 4 við bryggju á Hvammstanga en þaðan var báturinn gerður út um tíma. Báturinn var smíðaður á Ísafirði árið 1988 og hét Jón Helgason ÁR 12. Smíðaður fyrir Fræg hf. í Þorlákshöfn sem seldi bátinn … Halda áfram að lesa Haförn HU 4
Magni
2985. Magni. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2021. Elvar Jósefsson tók þessar myndir af dráttarbátnum Magna í vikunni en hann er í eigu Faxaflóahafna. 2985. Magni. Ljósmyndir Elvar Jósefsson 2021. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution









