Júlíus Havsteen

1462. Júlíus Havsteen ÞH 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þarna siglir Júlíus Havsteen ÞH 1 inn spegilsléttan Skjálfandann um árið en hann var fyrsti skuttogarinn í eigu Húsvíkinga.  Hann var smíðaður fyrir Höfða h/f hjá Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi 1976. Togarinn, sem var tæplega 300 brl. að stærð, hét lengst af þessu nafni en … Halda áfram að lesa Júlíus Havsteen →

Tjaldur SU 115

1538. Tjaldur SU 115. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Netabáturinn Tjaldur SU 115 er hér á landleið úr róðri á vetrarvertíðinni 1982 en Guðmundur Ragnarsson á Vopnafirði gerði þá út frá Þorlákshöfn. Tjaldur var smíðaður árið 1979 fyrir Framfara hf. á Fáskrúðsfirði og fór smíðin fram hjá Trésmíðaverkstæði Austurlands hf. þar í bæ. Báturinn, sem var … Halda áfram að lesa Tjaldur SU 115 →

Björg Jónsdóttir ÞH 321

263. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Gandí VE 171. Ljósmynd Pétur Jónasson. Á þessari ljósmynd Péturs Jónassonar gefur að líta Björgu Jónsdóttur ÞH 321 sem upphaflega hét Þorbjörn II GK 541 frá Grindavík. Báturinn var smíðaður árið 1964 fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða h/f í Grindavík. Smíðin fór fram í Djupvík í Svíþjóð en báturinn var 168 brl. … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321 →

Capitan Demidenko

IMO:8907137. Capitan Demidenko MK-0556 ex Kristina. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2022. Þennan þekkja eflaust einhverjir en HB Grandi hf. keypti skipið árið 2004 og nefndi Engey RE 1. Í dag heitir það Kapitan Demidenko sem var reyndar upphaflega nafn togarans en áður en hann fékk Engeyjarnafnið hét hann Jason. Hólmgeir Austfjörð tók þessa mynd af togaranum … Halda áfram að lesa Capitan Demidenko →

Álftafell SU 100

1126. Álftafell SU 100 ex Villi í Efstabæ BA 214. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Álftafell SU 100 liggur hér við bryggju á Stöðvarfirði sumarið 2004 en þaðan gerði Kross ehf. bátinn út á árunum 2002 - 2007. Báturinn hét upphaflega Skálavík SU 500 og var smíðuð árið 1970 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. fyrir Þjóðrek hf. … Halda áfram að lesa Álftafell SU 100 →

Hólmsteinn GK 20

573. Hólmsteinn GK 20 ex Hafdís GK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hólmsteinn GK 20 kemur hér að landi í Sandgerði um árið og enn með gömlu brúna en kominn hvalbakur. Upphaflega hét báturinn Hafdís GK 20 og var smíðaður í Hafnarfirði árið 1946. Hann var 43 brl. að stærð og smíðaður hjá Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. … Halda áfram að lesa Hólmsteinn GK 20 →