Björg Jónsdóttir ÞH 321

263. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Gandí VE 171. Ljósmynd Pétur Jónasson.

Á þessari ljósmynd Péturs Jónassonar gefur að líta Björgu Jónsdóttur ÞH 321 sem upphaflega hét Þorbjörn II GK 541 frá Grindavík.

Báturinn var smíðaður árið 1964 fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða h/f í Grindavík. Smíðin fór fram í Djupvík í Svíþjóð en báturinn var 168 brl. að stærð. Hann var endurmældur síðar og mældist þá 131 brl. að stærð.

Árið 1977 kaupir Gunnlaugur Ólafsson í Vestmannaeyjum bátinn og nefnir Gandí VE 171. Gandí var gerður út frá Eyjum til ársins 1985 en í janúar það ár kaupir Langanes hf. á Húsavík bátinn sem fékk nafnið Björg Jónsdóttir ÞH 321.

Frá Húsavík var báturinn seldur til Dalvíkur þar sem hann fékk nafnið Hafsteinn EA 262. Þetta var í febrúar 1988, kaupandinn Haraldur hf. á Dalvík. 

Síðar fékk báturinn nafnið Valeska EA 417 sem var hans síðasta nafn á íslenskri skipaskrá.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s