1149. Ingi GK 148 ex Húni ÍS 68. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Ingi GK 148 kemur hér að landi í Sandgerði sumarið 2003, nánar tiltekið í júní. Báturinn hét upphaflega þessu nafni en hann var smíðaður hjá Skipaviðgerðum hf. í Vestmannaeyjum árið 1971. Hann er 14 brl. að stærð. Árið 1973 var hann seldur vestur … Halda áfram að lesa Ingi GK 48
Author: Hafþór Hreiðarsson
Hoffellið á Skjálfanda
2885. Hoffell SU 80 ex Smaragd. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Í þessum skrifuðu orðum er uppsjávarveiðiskip Fáskrúðsfirðinga, Hoffell SU 80, að sigla um Skjálfandaflóa, sennilega að svipast um eftir loðnu. Þessi mynd er tekin á Húsavíkurhöfða og Hoffellið á leið inn flóann með Flatey í baksýn. Hoffell SU 80, sem áður hét Smaragd, er smíðað … Halda áfram að lesa Hoffellið á Skjálfanda
Reginn ÁR 228
1102. Reginn ÁR 228 ex Reginn HF 228. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2022. Reginn Ár 228 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn en myndina tók Sigurður Davíðsson skipverji á Steinunni SF 10 í morgun. Reginn hét upphaflega Símon Olsen ÍS 33 og var smíðaður 1970 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði. Hefur einnig borið nöfnin … Halda áfram að lesa Reginn ÁR 228
Háey I landaði í Grindavík í dag
2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Línubáturinn Háey I ÞH 295 kom til löndunar í Grindavík í dag og tók Jón Steinar þessa mynd af henni við bryggju. Hún var að fiska vel að sögn ljósmyndarans, aflinn ein 24-25 tonn en það er GPG Seafood ehf. sem á og gerir bátinn … Halda áfram að lesa Háey I landaði í Grindavík í dag
Vestri BA 63
3030. Vestri BA 63 ex Tobis. Ljósmynd Magnús Jónsson 2022. Magnús Jónsson tók þessa mynd í Hafnarfirði í gær en hún sýnir nýja Vestra BA 63 við bryggju. Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf á Patreksfirði keypti skuttogarann Tobis frá Noregi fyrir skömmu. Tobis, sem fékk nafnið Vestri BA 63, er smíðaður í Danmörku árið 2009 og er … Halda áfram að lesa Vestri BA 63
Fíi ÞH 11
2728. Fíi ÞH 11 ex Halla Daníelsdóttir RE 770. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Fíi ÞH 11 kom til Húsavíkur í dag á leið sinni til nýrrar heimahafnar á Raufarhöfn. Erindið var að taka olíu og hélt báturinn leið sinni áfram um leið og það var búið. Fíi ÞH 11 hét áður Halla Daníelsdóttir RE 770 … Halda áfram að lesa Fíi ÞH 11
Fjölnir GK 157
1136. Fjølnir GK 157 ex Ocean Breeze GK. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Jón Steinar tók þessa mynd af línuskipinu Fjölni GK 157 um helgina þegar skipið kom til Grindavíkur. Fjølnir var smíðaður í Mandal í Noregi 1968 en keypt til Íslands og kom það til heimahafnar á Skagaströnd í desember 1970. Þá hét það Skrolsvik T-84-TN en … Halda áfram að lesa Fjölnir GK 157
Samskip Skaftafell
IMO: 9164562. Samskip Skaftafell. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022. Eiríkur Sigurðsson tók þessar myndir á dögunum þegar Reval Viking var á landleið og mætti Samskip-Skaftafelli við Garðskaga. Samskip Skaftafell var smíðað árið 2000 og siglir undir fána Antigua & Barbuda með heimahöfn í Saint John´s. Skipið er 101 metrar að lengd og breidd þess 19 metrar. Það … Halda áfram að lesa Samskip Skaftafell
Guðmundur Arnar EA 102
2560. Guðmundur Arnar EA 102 ex Straumur ST 65. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Guðmundur Arnar EA 102 liggur hér við bryggju á Árskógssandi í dag en G.Ben útgerðarfélag ehf. keypti hann fyrr í vetur frá Hólmavík. Báturinn hét áður Straumur ST 65 en upphaflega Kristinn SH 112. Hann er tæplega 15 BT að stærð, af … Halda áfram að lesa Guðmundur Arnar EA 102
Donna Wood í slipp
Donna Wood. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Donna Wood, ein af skonnortum Norðursiglingar, fór upp í slipp á Húsavík á dögunum þar sem unnið er að viðhaldi á henni. Donna Wood var smíðuð smíðuð sem vitaskip árið 1918 en árið 1990 var henni breytt í það horf sem hún er nú í. Þ.e.a.s tvímastra skonnorta til … Halda áfram að lesa Donna Wood í slipp









