
Það var nokkuð þungur sjór í honum í dag þegar Óli á Stað hélt út frá Grindavík og Jón Steinar sendi drónann á loft til að mynda hann.
Ætlunin að ná einum róðri áður en næsta lægð skellur á. Sem verður einmitt um hádegisbilið á morgun ef spár ganga eftir.
Það er Stakkavík ehf í Grindavík sem á og gerir Óla á Stað út. Hann var smíðaður fyrir fyrirtækið hjá Seiglu á Akureyri og afhentur vorið 2017.
Hann er 14,8 metra langur og mælist 29.95 brúttótonn að stærð.



Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution