
Hér er Valeska EA 417 frá Dalvík á rækjuslóðinni um árið en upphaflega hét báturinn Þorbjörn II GK 541.
Báturinn var smíðaður árið 1964 fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða h/f í Grindavík. Smíðin fór fram í Djupvík í Svíþjóð en báturinn var 168 brl. að stærð. Hann var endurmældur síðar og mældist þá 131 brl. að stærð.
Árið 1977 kaupir Gunnlaugur Ólafsson í Vestmannaeyjum bátinn og nefnir Gandí VE 171. Gandí var gerður út frá Eyjum til ársins 1985 en í janúar það ár kaupir Langanes hf. á Húsavík bátinn sem fékk nafnið Björg Jónsdóttir ÞH 321.
Frá Húsavík var báturinn seldur til Dalvíkur þar sem hann fékk nafnið Hafsteinn EA 262. Þetta var í febrúar 1988, kaupandinn Haraldur hf. á Dalvík.
Árið 1990 kaupir Siglfirðingu h/f á Siglufirði bátinn sem varð Hafsteinn SI 151 um tíma.
Söltunarfélag Dalvíkur h/f kaupir bátinn aftur til Dalvíkur og gefur honum það nafn sem hann ber á myndinni. Ekki varði sú útgerð lengi en Kristján Guðmundsson h/f á Rifi kaupir bátinn og selur til Noregs árið 1992.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution