Norska línuskipuð Geir við bryggju í Hafnarfirði

IMO 9856024. Geir M-123-A. Ljósmynd Magnús Jónsson 2022. Maggi Jóns tók þessa mynd í Hafnarfirði um helgina en hún sýnir hið glæsilega línuskip Norðmanna, Geir M-123-A. Það er fyrirtækið H.P.Holmeset sem sem gerir skipið út en heimahöfn þess er Álasund. Það er smíðað í Vaagland Båtbyggeri og afhent þaðan árið 2020. Geir M-123-A er 63 metrar … Halda áfram að lesa Norska línuskipuð Geir við bryggju í Hafnarfirði

Hrafn Sveinbjarnarson GK með glæsilegan túr

1972. Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 ex Snæfell EA 740. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022. Hér er Hrafns Sveinbjarnarson GK 255 í Hafnarfirði eftir millilöndun um miðjan mars sl. en skipið kom í morgun úr veiðiferð sem skil­ar meira afla­verðmæti en áður hef­ur gerst hjá Þor­birni hf. sem ger­ir skipið út.  200 mílur greina frá þessu og … Halda áfram að lesa Hrafn Sveinbjarnarson GK með glæsilegan túr

Kristján HF 100

2961. Kristján HF 100. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línubáturinn Kristján HF 100 kemur hér að landi í Grindavík í fyrradag en afli hans var 14 tonn. Kristján HF 100 er yfirbyggður Cleopatra 46B beitningavélarbátur frá Trefjum sem var afhentur sumarið 2018. Báturinn er 14 metrar að lengd og mælist 30 brúttótonn. Útgerð Grunnur ehf.. 2961. Kristján … Halda áfram að lesa Kristján HF 100

Netarall hafið

1084. Friðrik Sigurðsson ÁR 17 ex Jóhann Friðrik ÁR 17. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2022. Netarall hófst í fyrradag og taka sex bátar þátt í verkefninu; Magnús SH í Breiðafirði, Saxhamar SH í Faxaflóa, Þórsnes SH frá Reykjanesi að Þrídröngum, Friðrik Sigurðsson ÁR frá frá Þrídröngum að Skeiðarárdjúpi, Sigurður Ólafsson SF frá Meðallandsbugt að Hvítingum og … Halda áfram að lesa Netarall hafið

Björg Jónsdóttir ÞH 321

1508. Björg Jónsdóttir ÞH 321 Höfðavík AK 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Björg Jónsdóttir ÞH 321 hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177 og var skipið smíðað í Slippstöðinni á Akureyri árið 1978. Þegar Langanes hf. keypti skipið frá Akranesi árið 1996 bar það nafnið Höfðavík AK 200 en fékk nafnið Björg Jónsdóttir ÞH 321. Björg … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321

Samningur um smíði nýs rannsóknaskips undirritaður

Tölvumynd af rannsóknarskipinu sem ætlað er að koma í stað rs. Bjarna Sæmundssonar. Í tilefni 100 ára fullveldisafmælis Íslands samþykkti Alþingi í júní 2018 þingsályktun um að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra væri falið að hefja undirbúning að smíði hafrannsóknaskips sem ætlað er að koma í stað rs. Bjarna Sæmundssonar. Eftir nær þriggja ára vinnu við hönnun … Halda áfram að lesa Samningur um smíði nýs rannsóknaskips undirritaður

Björg Jónsdóttir og Mánafoss

1508. Björg Jónsdóttir ÞH 321 - Mánafoss. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Björg Jónsdóttir ÞH 321 kemur hér til hafnar á Húsavík í lok marsmánaðar árið 2003. Við Norðurgarðinn er Mánafoss sem þá var á ströndinni. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir og Mánafoss

Fín veiðiferð Örfiriseyjar RE í Barentshafið

2170.Örfirisey RE 4 ex Polarborg 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Frystitogarinn Örfirisey RE er nú á Vopnafirði. Þangað kom togarinn í gær eftir veiðiferð í norsku landhelgina í Barentshafi. Á heimasíðu Brims segir að löndun hafi hafist í gær en stefnt sé að því að togarinn fari aftur í norsku lögsöguna og hann láti úr … Halda áfram að lesa Fín veiðiferð Örfiriseyjar RE í Barentshafið