
Kúfiskveiðiskipið Fossá ÞH 362 frá Þórshöfn kemur hér að bryggju á Húsavík um árið.
Fossá ÞH 362 var smíðuð í fyrir Hraðfrystistöðvar Þórshafnar og kom hún til heimahafnar á Þórshöfn í febrúarmánuði árið 2001. Skipið var smíðað í Huangpu-skipasmíðastöðinni í Gung Zhou í Kína.
Í dag heitir skipið Grettir BA 39 og var því breytt í þangskurðarskip í Slippnum á Akureyri. Grettir kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Reykhólum í maímánuði 2011.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution